innviðafélag.
Hæstv. forseti. Ég þakka Bergþóri Ólasyni fyrir svarið en er enn þá dálítið hissa vegna þess að ég minnist þess ekki að Hvalfjarðargöng hafi verið fjármögnuð nema með hreinni viðbót. Ég kannast ekki við að neitt annað hafi verið lækkað á móti. Það er annað í því samhengi, sem er sameiginlegt áhugamál okkar hv. þingmanns, að ríkisábyrgð sé ekki beitt í óhófi, sem var vissulega beitt í því verkefni. En ég vil spyrja hv. þingmann: Hvaða gjöld voru lækkuð á umferð um Hvalfjörð eða umferð um það mannvirki á móti gjaldtökunni sem fór fram í Hvalfjarðargöngunum?