innviðafélag.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka þingmanninum fyrir ræðuna. Ég átti, ekki ólíkt ráðherra, erfitt með að átta mig á afstöðu þingmannsins til málsins af því að hann óskaði ráðherra til hamingju með málið en svo komu 14 mínútur af varúðarorðum við í þessu frumvarpi, það væri margt sem gæti farið úrskeiðis. Þannig að það væri ágætt að heyra hvaða afstöðu þingmaðurinn hefur. Hann, ásamt fleirum, er búinn að leggja fram þingsályktunartillögu hér á þessum vetri sem er um samgöngufélagið Þjóðbraut. Þar segir í greinargerðinni, með leyfi forseta:
„Með Þjóðbraut mætti á svipaðan hátt ráðast hraðar í brýn verkefni eins og nauðsynlegar vegabætur á Vestfjörðum og á Vesturlandi, tvöföldun Vesturlandsvegar um Kjalarnes, hraðari uppbyggingu brúa á Norðausturlandi, ný Hvalfjarðargöng og fleiri verkefni þar sem tekjur félagsins (veggjöld) stæðu undir lánum eða fjármögnun.“
Ég fer bara að velta fyrir mér: Hefur þingmaðurinn skipt um skoðun frá því að þessi þingsályktunartillaga var lögð fram, sem hann er meðflutningsmaður að, síðan nýtt innviðafélag leit dagsins ljós í frumvarpi?