157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

innviðafélag.

535. mál
[17:23]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur fyrir andsvarið. Hv. þingmaður virðist ekki hafa lesið þingsályktunartillöguna um þjóðbraut því að þar er nefnilega sérstaklega tilgreint að fella niður ákveðna gjaldtöku. Til að mynda eru sérstaklega nefnd vörugjöld á ökutæki. Þar er ekki gert ráð fyrir kílómetragjaldinu sem ríkisstjórnin af miklu harðfylgi teppalagði yfir landsmenn alla sem nýta vegi landsins og ökutæki. Þar kemur einmitt fram sú hugsun að þetta sé ekki hrein viðbót í gjaldtöku heldur sé stigið til baka að hluta til hvað almenna þegar tilkomna gjaldtöku varðar. Það er kjarnaatriði. Það er á þeim nótum sem veggjöld hafa verið rædd hér í þinginu, sérstaklega á þarsíðasta kjörtímabili. En nú liggur fyrir að hæstv. ráðherra sér fyrir sér að það sé hrein viðbót við þegar tilkomna gjaldtöku allt er varðar þetta mál; tafagjöldin í tengslum við samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, samvinnuverkefnin sex (Forseti hringir.) og — ég er að gleyma einhverju einu atriði í þessari upptalningu. Þannig að það er gríðarlega mikil viðbótargjaldtaka sem liggur fyrir ef fram heldur sem horfir.