innviðafélag.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég náði því samt ekki alveg hjá honum, en allt í góðu með það, ég á það bara við sjálfan mig.
Mig langar líka að spyrja þingmanninn. Nú er samgönguáætlun til umræðu í umhverfis- og samgöngunefnd og það er algerlega ljóst að þetta innviðafélag er alger forsenda þess að hægt verði að fara í allar þessar framkvæmdir því að það hafa verið lagðar hér fram samgönguáætlanir til þessa sem hafa ekki verið fjármagnaðar og hafa frekar byggt á óskalista. Mig langar að spyrja þingmanninn, ég veit að hann er mikill framkvæmdamaður líkt og við erum mörg hér: Sér hann einhverja aðra leið en að stofna innviðafélag til að koma þessum stóru og mikilvægu framkvæmdum í framkvæmd með þeim hætti sem ráðherra hefur hér mælt fyrir? Eru einhverjar aðrar leiðir?