157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

innviðafélag.

535. mál
[17:27]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Við ræðum hér spennandi mál. Mig langar að spyrja hv. þm. Bergþór Ólafsson einmitt varðandi fullfjármögnun samgönguáætlunar. Þetta er lykilplaggið í því og það á eftir að ganga í verkið og klára þetta mál. Mér fundust fagnaðarlætin vera aðeins of mikil hérna áðan, eins og þetta væri allt komið og búið að ganga frá því hvernig ætti að standa að þessu flókna máli sem við erum að fjalla um. Við sjáum líka, sem er kannski þessi punktur um fullfjármögnunina, fréttaflutning og viðtöl við lífeyrissjóðina og hvernig þeir líta á fjármögnun á svona verkefni. Þeir tala svolítið gegn því að það sé einhvers konar vafningur þar sem mörg verkefni séu sett inn, ekki öll arðbær og það sé búið til einhvers konar eitt félag um margar framkvæmdir. Lífeyrissjóðirnir vilja frekar horfa til þess að hvert og eitt verkefni hafi fjárhagslegan ramma utan um hverja einstaka framkvæmd. Ef hv. þingmaður myndi aðeins tjá sig um það.