157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

innviðafélag.

535. mál
[17:28]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni andsvarið. Í fyrsta lagi ítreka ég það sem ég sagði áðan, að allt tal um að fyrirliggjandi samgönguáætlun sé fullfjármögnuð er byggt á misskilningi. Bara það eitt dugar að þetta mál sé óafgreitt og allir þeir óvissuþættir sem í því eru, eins og umsagnaraðilar hafa lýst, það ætti bara að klára þá umræðu. Sömuleiðis er ekki búið að útfæra með hvaða hætti tafagjöld samgöngusáttmálans verða innheimt eða það kerfi útfært. Þetta er allt með einhverjum losarabrag og óljóst.

En — nú gleymdi ég lokaspurningunni. Getur hv. þingmaður hjálpað mér? (NTF: Lífeyrissjóðirnir.) Já, já, lífeyrissjóðirnir. Já, ef við horfum til umsagnar Landssambands lífeyrissjóða, sem er bara býsna skýr, rétt ein og hálf síða, þá er gríðarlega margt sem á eftir að taka tillit til í þessu samhengi og það að hafa (Forseti hringir.) öll verkefnin í einu félagi held ég að muni að einhverju marki (Forseti hringir.) hrekja slíka aðila frá fjárfestingu þeirra pappíra sem svona félag gefur út. En síðan í hina röndina, ef það verður farið yfir það (Forseti hringir.) — afsakaðu, frú forseti — að fara yfir í mörg félög, þá auðvitað enda einhver þeirra bara með mjög stóran greiðsluhluta úr samgönguáætlun hvers tíma.