157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

innviðafélag.

535. mál
[17:30]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Það eru nefnilega svo mörg stór og mikilvæg mál sem eiga eftir að fara í gegn núna í tengslum við samgöngurnar í landinu. Þetta er eitt mjög spennandi verkefni sem er að koma til okkar í hv. fjárlaganefnd, þetta mál. En talandi um samgöngusáttmálann þá er það nú þannig að 2030–2040 er reiknað með að það þurfi að koma 13, 14 milljarðar á ári í flýtigjöld eða tafagjöld, hvað sem menn vilja kalla þetta, 13, 14 milljarðar á ári í 11 ár. Það er talan sem við erum að vinna með þar. Sú tala hækkar stöðugt en hún er um 46% af heildarupphæðinni í samgöngusáttmálanum, sem er reiknað með að komi í gegnum þessi tafagjöld eða flýtigjöld. Þetta eru margar og stórar tölur en sá sem hér stendur er ekki maðurinn til þess að vera á móti því að þeir greiði fyrir sem njóta, samanber varaflugvallargjald, uppbyggingu alþjóðaflugvalla landsins, sem hefur reynst mjög vel og er gangur í. En þetta eru áhugaverðar tölur. Þetta eru svo stórar tölur sem við erum að ræða í þessu samhengi.