157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

innviðafélag.

535. mál
[17:34]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Degi B. Eggertssyni fyrir andsvarið. Auðvitað verður því að linna á einhverjum tímapunkti að núverandi ríkisstjórn vísi til verka fyrri ríkisstjórnar sem einhvers lags lausnarorðs fyrir sig. Vissulega lá fyrir fjármálaáætlun, en við fáum nýja innan skamms þar sem sjónarmið núverandi ríkisstjórnar birtast. En eins og ég kom inn á í andsvari áðan er gjaldtaka af akstri á ökutækjum tugum milljarða umfram það sem er varið til nýbyggingar og viðhalds vegakerfisins, jafnvel þótt við tökum virðisaukaskattinn algjörlega út fyrir sviga, tugum milljarða á ári, þannig að til þessa ættum við að horfa í byrjun.

Ég hef ekki talað kategórískt á móti veggjöldum. Ég vil bara sjá heildarmyndina. Ég tel að til að mynda Sundabraut blasi við sem gott veggjaldaverkefni. Hvalfjarðargöngin gerðu það á sínum tíma. Ég þekki sögu þess mjög vel. Ég hef á tilfinningunni að í þessu máli sem liggur hér fyrir séu menn býsna skammt á veg komnir hvað varðar það að sjá heildarmyndina. Það er ekki enn þá búið að útfæra með hvaða hætti tafagjöldin í samgöngusáttmálanum verði útfærð. Það er ekki enn þá búið að sýna neitt á spilin varðandi gjaldtöku hérna. Við getum bara nefnt nýjasta dæmið: Fyrirhuguð gjaldtaka hjá Ölfusárbrúnni er miklum mun hærri en rætt var um í þinginu fyrir fjórum árum síðan, miklum mun hærri. Þannig að það er þessi heildarmynd sem mér þykir skipta máli að liggi fyrir. En við þurfum að auka nýframkvæmdir umtalsvert og við getum gert það með margþættum hætti, bæði með því að verja hærra hlutfalli af þessum tekjum sem ég nefni, sem koma af akstri á ökutækjum, til nýframkvæmda og viðhalds. Við getum farið inn í hlutafjármögnun með veggjöldum, fulla fjármögnun sums staðar. En ég ítreka: Það er heildarmyndin sem vantar algerlega.