innviðafélag.
Virðulegur forseti. Þessu er ég sammála. Við eigum að horfa á heildarmyndina og það verður spennandi að horfa á hana og glíma við hana í meðförum fjárlaganefndar á þessu máli. Ég vil bara taka undir það sem kom fram í ræðu þingmannsins varðandi það að skerpa á verkaskiptingu Betri samgangna og þessa nýja innviðafélags. Ég held að það sé nauðsynlegt að botna þessi mál. Það er auðvitað opið fyrir það í samgöngusáttmálanum að ríkið komi með aðrar tekjur inn í samgöngusáttmálann til að hann gangi eftir, frekar en umferðar- og flýtigjöldin. En ég er ekki viss um að það væri samstaða um að veggjöld væru bara tengd verkefnum úti á landi en ekki á höfuðborgarsvæðinu. Ég held að sú hugsun sem lá til grundvallar, að þessi viðbótarverkefni á höfuðborgarsvæðinu tengdust líka einhvers konar gjaldtöku, hafi verið hluti af þeirri hugsun þáverandi ríkisstjórnar að það væri verið að setja veggjöld í tengslum við ýmsar framkvæmdir úti á landi. Það væri bara sanngirnismál að þetta næði til allra þó að lögð væri áhersla á að þetta yrði hóflegt. En þetta finnst mér allt eðlilegt að skoða og ganga frá sem hluta af heildarmynd af fullfjármagnaðri samgönguáætlun.