innviðafélag.
Virðulegur forseti. Ég þakka andsvarið. Nú ætla ég ekki að leyfa hv. þingmanni að ná mér upp varðandi fullfjármögnuðu samgönguáætlunina. Hún er ekki fullfjármögnuð, svo sú afstaða mín liggi fyrir. En það er ekki nema sanngjarnt gagnvart okkur sem í þinginu erum að þessi mynd, í ljósi þeirra hagsmuna sem eru undir, sé teiknuð miklu skýrar en gert hefur verið. Ég er ekki í neinu samhengi að verja störf fyrri ríkisstjórnar, ekki láta ykkur detta það til hugar. Ég hugsa að ég hafi nú kannski helst verið skammaður fyrir að vera of gagnrýninn í hennar garð síðustu tvö kjörtímabil. Og samgöngusáttmálinn. Ég óttast einmitt það svigrúm sem samgöngusáttmálinn skilur eftir til að hér verði teknar ákvarðanir um að ríkissjóður komi með enn meiri beinar fjárveitingar þangað inn en lagt var upp með. Ég held að þetta endi raunverulega á því að ríkissjóður borgi þetta allt saman, meira og minna. Ríkissjóður á 87,5% af félaginu en ég held að þegar til kastanna kemur verði freistnivandinn mikill til að losa sig undan þeirri kvöð að innleiða hér tafagjöld á umferð á höfuðborgarsvæðinu.