innviðafélag.
Virðulegur forseti. Hér erum við að ræða ansi stórt og merkilegt mál. Ég er í eðli mínu sammála því að stofna innviðafélag en kannski ekki alveg með þeim hætti sem hér er verið að boða. Sá sem hér stendur er flutningsmaður á tillögu um samgöngufélagið Þjóðbraut þar sem er verið að horfa á nýja nálgun í að fjármagna stærri samgöngumannvirki og innviði í samgöngukerfinu, líkt og hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa talað um í mörg ár, svo ég nefni hv. þingmenn Jón Gunnarsson og Vilhjálm Árnason. Þetta er í þeim anda að fara að hugsa samgöngukerfið út frá því að þeir borgi sem nota og vera þá með gjaldhlið á stærri mannvirkjum. Út á það gengur samgöngufélagið Þjóðbraut. Það gengur líka út á það að fella þá niður aðra skatta á móti.
En hér er hæstv. ríkisstjórn að fara að stofna innviðafélag þar sem á bara að bætast við enn einn skatturinn á ökutækjaeigendur. Það á ekki að fella niður vörugjöld á ökutæki, sem ríkisstjórnin hækkaði reyndar núna í síðustu fjárlögum úr 10,9 milljörðum upp í um 19 milljarða. Það á ekki að lækka kílómetragjaldið til að koma til móts við þetta. Og meira að segja stendur hér í 4. kafla, Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar, til að taka af allan vafa um það að hæstv. ríkisstjórn geti haldið áfram að rukka kílómetragjaldið:
„Kílómetragjaldið felur því ekki í sér sérstakt endurgjald fyrir notkun tiltekins samgöngumannvirkis og fellur af þeim sökum ekki undir hugtakið notkunargjald í skilningi 17. gr. vegalaga, nr. 80/2007. Af því leiðir að álagning veggjalda af hálfu innviðafélagsins á afmörkuðum samgöngumannvirkjum stangast ekki á við bann 5. mgr. 17. gr. vegalaga, nr. 80/2007, við tvöfaldri gjaldtöku, jafnvel þótt ökutækið sem um mannvirkið fer sé jafnframt gjaldskylt til greiðslu kílómetragjalds til ríkissjóðs.“
Sem sagt: Það á ekki að fella niður kílómetragjaldið. Það á ekki að lækka bifreiðagjöld og það á ekki að lækka eða fella niður kolefnisgjöld. Þetta er enn ein skattheimtan á ökutækjaeigendur, þá sem eru að nýta vegina. Ég geri miklar athugasemdir við það, virðulegur forseti. Miðað við þær skattahækkanir sem hafa verið er alveg ótrúlegt að hér eigi að bæta við einum nýjum skatti en ekki hugsa málið út frá heildinni. Og eins og segir hér á blaðsíðu 11, um mat á áhrifum, í kafla 6,2:
„Stjórnvöld hafa upplýst að þau verkefni sem vilji er til að félagið skoði að taka til framkvæmda eru Sundabraut, Fljótagöng og fjármögnun Ölfusárbrúar […] Miðað við þessar forsendur er samanlagður framkvæmdakostnaður þessara þriggja verkefna áætlaður rúmir 190 milljarðar kr. […] Til að mæta þeim kostnaði var skoðað að afhenda félaginu Vaðlaheiðargöng og Hornafjarðarfljót en þar er nú þegar verið að innheimta eða stendur til að innheimta veggjöld. Að auki var skoðað að leggja félaginu til mannvirki sem þegar hefur verið byggt og taka upp innheimtu veggjalda og var greiningin gerð miðað við að það væru Hvalfjarðargöng sem félaginu yrðu lögð til.“
Hér stendur ekkert um að það að leggja t.d. Hvalfjarðargöngin inn í þennan pott sé til að byggja ný Hvalfjarðargöng heldur til að standa straum af kostnaði við verkefnin þrjú sem ég nefndi hér fyrst. Svo segir hér líka:
„Með slíkum ráðstöfunum lækkar þörf á framlagi frá ríkinu verulega, eða í 27 milljarða kr. Mögulegt er að skoða fleiri þegar byggð mannvirki í þessu samhengi, til að mynda Reykjanesbraut og Suðurlandsveg, en með slíkum aðgerðum væri innheimta veggjalda á öllum helstu leiðum til og frá höfuðborgarsvæðinu sem í fælist ákveðin sanngirni þar sem byrðum yrði dreift á vegfarendur hvar sem þeir byggju eða störfuðu.“
Þetta benti hv. þm. Vilhjálmur Árnason á í færslu og fékk hörð mótmæli, að þetta stæði ekki til, frá bæði hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og síðan hv. þm. Víði Reynissyni á samfélagsmiðlum. En þetta stendur hér bara alveg kýrskýrt, virðulegur forseti, kýrskýrt. En það stendur ekkert um að þessir peningar — það á bara að leggja þetta inn í pottinn til að standa straum af og fjármagna þessi þrjú 190 milljarða verkefni. Það er líka það sem hefur aðeins verið, hvað á maður að segja, farið rangt með. Miðað við það sem maður les hér varðandi það ef Hvalfjarðargöngin koma inn, þá eigi það að fara í það að fjármagna Hvalfjarðargöng II. Það stendur bara ekkert um það hér. Það er bara eitthvert huglægt mat ráðherrans.
Virðulegur forseti. Þetta eru í fyrstu atrennu þær athugasemdir sem ég geri við stofnun þessa innviðafélags. Ég vona að málið taki breytingum í meðförum nefndarinnar núna eftir 1. umræðu og að tekið verði tillit til þeirra umsagna og þeirra gesta sem munu koma fyrir nefndina. Ég held að það sé mikilvægt. Þegar við sjáum hvernig frumvarpið lítur út eftir meðferð nefndarinnar, eftir 1. umræðu, þá held ég að okkur gefist betri og dýpri tími til að ræða það betur í 2. umræðu.