innviðafélag.
Virðulegur forseti. Mig langar aðeins að ræða hér um þetta ágæta innviðafélag sem við erum að stefna á að stofna hér. Ég vil segja það í upphafi þessarar ræðu minnar að ég hef svo sem almennt verið hlynntur því að stofna hérna innviðafélag. Ég held að það sé öllum ljóst sem hafa aðeins kynnt sér málið að þeirri gríðarlegu framkvæmdaþörf sem hefur skapast í kringum vegakerfið á Íslandi verður illa mætt með samgönguáætlun og því fjármagni sem kemur í gegnum samgönguáætlun á hverju ári. Þannig að það hefur verið alveg ljóst lengi og legið fyrir að það þarf að skoða aðrar leiðir til þess að takast á við þann gríðarlega uppsafnaða vanda sem er í vegakerfinu og innviðafélag eða innviðagjöld eru klárlega ein af þeim leiðum.
Það eru samt nokkrir þættir sem mig langar til að ræða í þessari greinargerð og þessu frumvarpi hérna og ég ætla að reyna að prjóna mig hérna í gegnum greinargerðina.
Fyrst er umræðan um hvar þetta félag verður staðsett, þ.e. hvort þetta verður A3-félag eða C-hluta félag. Af lestri greinargerðarinnar gerir maður sér grein fyrir því að vilji þeirra sem eru á bak við þetta frumvarp er greinilega að koma þessu í C-hluta félag, sem er þá sambærilegt því sem við sjáum í Isavia, Landsneti og Farice, sem eru dæmi um slík félög. Við höfum reyndar verið að taka mikla umræðu í fjárlaganefnd um þessi félög bara núna á síðustu misserum og ég ætla ekki að nota orðið efasemdir í því sambandi en við höfum verið að velta fyrir okkur aðkomu þingsins að þessum félögum, og sérstaklega hvað varðar yfirsýn og stýringu á þeim fjárfestingum sem þessi félög eru að fara í. Á sama tíma og þingið er að reyna að stýra fjárlögum í takt við hagsveifluna þá eru þessi félög þar fyrir utan. Ég ætla svo sem ekki að hafa sterka skoðun á því strax og reyna í minni ræðu að vera ekki mjög yfirlýsingaglaður þar sem ég reikna nú með að þetta frumvarp komi inn í fjárlaganefnd þar sem það fái umræðu og ég hlakka mikið til þeirrar umræðu. En ég nota þennan tíma hér aðeins til að koma inn á nokkra punkta og þar á meðal þennan punkt: Hér segir, með leyfi forseta:
„… að fjármögnun félagsins og verkefna þess byggi á fjórum stoðum, þ.e. árlegu fjárframlagi samkvæmt samningi við ríkið til næstu ára, lánsfjármögnun á almennum markaði eða með ríkisábyrgð eða endurlánum, gjaldtöku af samgöngumannvirkjum og fjárfestingu lífeyrissjóða og annarra fjárfesta.“
Það er náttúrlega þessi ríkisábyrgð sem er þarna nefnd sem myndi væntanlega gera það að verkum að það yrði erfiðara að setja félagið í C-hluta. En ég bara endurtek hér það sem ég sagði áðan að það er alveg greinilegt og ég held að það sé vilji framkvæmdarvaldsins og þeirra sem skrifuðu þetta að koma þessu þar inn. En þá held ég að það verði erfitt að vera með ríkisábyrgðina þó að það sé kannski ekki ómögulegt, en mér finnst það pínu stangast á.
Það er nú meira hérna sem er í þessu frumvarpi, m.a. það sem kemur fram í kafla 4 á blaðsíðu 8 þar sem segir:
„[Samkvæmt stjórnarskránni] má engan skatt leggja á né breyta nema með lögum. Veggjald samkvæmt frumvarpinu er þjónustugjald en ekki skattur, enda er því ætlað að standa straum af byggingarkostnaði, viðhaldi, rekstri, þróun og eðlilegum afrakstri af fjárfestingu þeirra tilteknu samgöngumannvirkja sem félagið fer með veghald á …“
Þetta er spurning sem ég reikna nú ekki með að fá svar við núna en er eitthvað sem ég held að við þurfum að skoða í fjárlaganefnd, sem er einmitt þetta: Við erum að fara að byggja upp einhver mannvirki, einhver samgöngumannvirki, og við verðum að borga veggjald eða þjónustugjald fyrir að keyra um þau, sem er þá byggt á því sem hér kemur fram: „[Því er] ætlað að standa straum af byggingarkostnaði, viðhaldi, rekstri, þróun og eðlilegum afrakstri af fjárfestingu …“
Ég held að það sé tiltölulega auðvelt að reikna þetta út bara miðað við þá upphæð sem það verkefni kostar. Síðan erum við að fara að leggja önnur verk eða samgöngumannvirki þarna inn sem geta verið að einhverjum hluta, að stórum hluta eða öllum, afskrifuð. Hvernig samræmist það því — ef veggjaldið á að standa straum af byggingarkostnaði og viðhaldi þá hlýtur einhvern veginn eðli málsins samkvæmt það veggjald að vera allt annað heldur en veggjaldið fyrir nýbygginguna. Erum við að tala um að þetta verði sama veggjaldið eða verður það mismunandi á milli einstakra verkefna, þá nýrra og þeirra sem eldri eru? Þetta sló mig aðeins þegar ég var að lesa þessa greinargerð og fór að velta þessu fyrir mér: Hvernig menn ætla að fara með þetta, þ.e. nýframkvæmdir versus þær fjárfestingar sem koma inn og eru eldri að hluta til eða að öllu leyti afskrifaðar, ef það verður þannig?
Hér kemur líka fram í sama kafla, þar sem er verið að tala um ríkisaðstoðarhugtakið, að ef innviðir eru í samkeppni við aðra flutningsmöguleika, t.d. ferjur eða aðrar leiðir, þá getur verið að það falli undir ríkisaðstoðina. Hér er reyndar verið að tala um aðrar leiðir eða ferjur. Ég velti því fyrir mér með flug, almenningsflugið, hvort það raski þessu eitthvað, hvort það geti talist samkeppnisaðili við þessar leiðir. Hvort það hefur verið skoðað veit ég ekki. Það breytir aðeins myndinni. En kannski á það ekki við og það er kannski ástæðan fyrir því að þetta er ekki nefnt þarna inni.
Svo er það kafli 6 sem er um mat á áhrifum. Þar er sömuleiðis verið að tala um C-hluta félag utan hins opinbera, utan AA-hluta — ég sé að hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra er búinn að óska eftir andsvari við mig og ég vona að hann komi aðeins inn á þetta. Ekki það að ég ætli að fara að stýra hans andsvari en það yrði afskaplega vel þegið hjá þeim sem hér stendur að geta aðeins átt orðastað við hann um þetta vegna þess að þetta skiptir gríðarlegu máli hvar þetta er, hvar skuldir félagsins verða staðsettar, hvort þær eru fyrir innan eða utan. Það breytir myndinni alveg gríðarlega fyrir ríkissjóð og rekstur ríkissjóðs.
Síðan er hérna er verið að tala hér um rekstrarforsendur innviðafélagsins, sem er mjög áhugaverður kafli. Þar er verið að tala um Sundabraut, Fljótagöng og fjármögnun Ölfusárbrúar, sem er komin vel af stað. Þetta eru gríðarlegar upphæðir. Það eru 19 milljarðar í Ölfusárbrú, Fljótagöngin eru 21,5 milljarðar og Sundabrautin er 150 milljarðar. Þetta eru 190 milljarðar samtals. Hér er verið að tala um að ríkissjóður þyrfti að leggja til 75 milljarða, en 27 milljarða ef félaginu verði afhent Vaðlaheiðargöng og Hornafjarðarfljót. Ég verð nú bara að viðurkenna að þegar ég var að lesa þetta þá skildi ég ekki — ég skil ekki alveg hvernig útreikningurinn á virði þessara samgöngumannvirkja er í raun og veru. Á einum stað í frumvarpinu er verið að tala um að það geti myndast einhvers konar eingreiðsla á árinu þegar þetta er fært yfir í þetta C-hluta félag, þá myndist einhvers konar tekjustofn á A1. Ég skil ekki alveg hvernig hann verður til vegna þess að það er í raun og veru ekkert fjármagn sem er verið að leggja til heldur einfaldlega bara eign. En þetta er væntanlega eitthvað sem við fáum líka að taka fyrir í nefndinni.
Ég sé nú, virðulegur forseti, að tíminn er fljótur að líða þannig að ég ætla nú að reyna að hlaupa hér hratt yfir. Það sem mig langar að gera hér að umtalsefni mínu í lokin eru veggjöldin. Á blaðsíðu 14 í kafla 6,6 er fjallað um mat á áhrifum á notendur. Reyndar er verið að tala um afsláttarkort, sem ég fagna. Ég held að við þurfum að vanda okkur gríðarlega vel þegar við erum að fara að setja þessi veggjöld á vegna þess að það skiptir máli hvernig við gerum þetta. Það er áætlað að varðandi Sundabraut, Ölfusárbrú og Fljótagöng séu tekjur um 7,5 milljarðar á ári og tekjur af Hvalfjarðargöngum og Vaðlaheiðargöngum séu um 8,9 milljarðar. Ef við tökum aðeins saman hvað er búið að vera að gera á síðustu misserum þá staldra ég aðeins við vegna þess að við settum hérna á vörugjöld upp á 7,5 milljarða, sem eru auknar álögur á bifreiðaeigendur. Það eru 3,3 milljarðar í kílómetragjaldinu. Við fengum kynningu í fjárlaganefnd bara núna í vikunni um borgarlínuverkefnið þar sem áætlanir gera ráð fyrir að flýtigjöldin verði um 13 milljarðar á ári. Síðan erum við komin með Sundabraut, Ölfusá og Hornafjarðarfljótið upp á 7,5 og Hvalfjarðargöng og Vaðlaheiðargöng upp á 9,8 milljarða. Virðulegur forseti. Þetta eru 41 milljarður kr. sem eru komnir hér í auknar álögur á bifreiðaeigendur á ári, að sjálfsögðu með fyrirvara um það að gangi þetta allt saman eftir. Ég skal alveg viðurkenna það, eins og ég sagði hér í upphafi, að ég geri mér grein fyrir þörfinni, algjörlega, og hef ekki verið mótfallinn þessu verkefni. En þá velti ég því fyrir mér hvort við séum með öllu þessu hreinlega komin of langt vegna þess að 41 milljarður eru, ef ég man rétt, meira en ríkið er að setja inn í fjárfestingar í samgönguáætlun á hverju ári varðandi vegakerfið. Ég held að það séu um 35 eða 36 milljarðar.
Þess vegna segi ég varðandi veggjöldin: Við þurfum að vanda okkur og við þurfum að passa okkur. En annars bara hlakka ég til að taka þessa umræðu inni í fjárlaganefnd og hef ekki væntingar til neins annars en að umræðan verði góð. Ég óska ráðherranum til hamingju með að vera kominn fram með þetta frumvarp.