innviðafélag.
Forseti. Ég vil þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir ræðuna. Ég ætla að byrja á því að spyrja hv. þingmann út í þá punkta sem hann fór yfir. Hv. þingmaður benti réttilega á að um þjónustugjöld er að ræða. Ég held að það sé mikilvægt að við skiljum að gjaldtöku ríkisins, sem er meira í formi skatta, og síðan þjónustugjöldin vegna þess að forsendur þjónustugjaldanna eru auðvitað að hver og einn notandi sjái sér hag í því að greiða þjónustugjaldið frekar en að nýta sér hjáleiðir.
Hv. þingmaður benti réttilega á, og raunar kom það líka fram í máli hv. þm. Bergþórs Ólasonar, að verðmismunun er í sjálfu sér einn hluti af rekstrarforsendum félaga eins og þessara. Ég tek undir með hv. þingmanni að hún skiptir gríðarlega miklu máli. Þegar ég tala um verðmismunun þá er ég að ræða það sem hv. þingmaður nefndi sem er að þeir sem nota innviðinn sjaldan greiði annað verð en þeir sem nota innviðinn oft. Það er fyrirkomulag sem við notum til að gera mjög mikið á Íslandi varðandi alls konar þjónustu sem opinberir aðilar veita og hefur komið fram allt frá aðgangi að íþróttamannvirkjum og sundstöðum yfir í vegaframkvæmdir. Tekur hv. þingmaður undir það sjónarmið að slík þjónustugjöld séu ekki óeðlilegt fyrirbæri og það sé augljóslega þjóðhagslega hagkvæmara að bjóða þjónustuna gegn greiðslu fyrir afnot frekar en að bjóða hana ekki? Ég vil aftur minna á að í öllum tilfellum er hér um að ræða innviði sem er hægt að velja að nota eða nota ekki.