157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

innviðafélag.

535. mál
[18:04]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir fyrirtaksandsvar og góðar vangaveltur hér. Bara til að byrja á að svara spurningunni: Jú, það var nú eiginlega það sem ég var að lýsa hér í upphafi, virðulegur forseti. Ég er ekki andvígur þessari hugmyndafræði og hef aldrei verið. Ég held að við séum bara komin á þann stað varðandi samgöngur á Íslandi að við verðum að fara í einhverjar svona útfærslur. Það var talað um það á síðasta kjörtímabili að fara í einhvers konar innviðafélag, þannig að ég væri ekki samkvæmur sjálfum mér ef ég ætlaði að fara að vera algerlega í andstöðu við þetta mál. Það sem ég var hins vegar bara að benda á, virðulegur forseti, var einfaldlega það — og það er alveg rétt sem hæstv. ráðherra segir og ég er sammála honum í því að það er ekkert að því að bjóða upp á þjónustuna. Við sáum bara Hvalfjarðargöngin t.d. og hvernig þau virkuðu. Fyrir okkur sem búum úti á landi og notum Hvalfjarðargöngin mikið þá náttúrlega keyptum við okkur kort til þess að borga margfalt minna. Það er ekki spurning um að það þurfi að vera einhver verðmismunun á þessu annars — já, ég held að það sé algerlega nauðsynlegt fyrir verkefnið að slíkt sé.

En varðandi það sem hæstv. ráðherra segir varðandi þjónustugjöldin og skattana. Þetta er vissulega allt rétt, auðvitað er mismunur þarna á. Það sem ég var einfaldlega að benda á var að fyrir kannski mig eða hinn almenna borgara að þótt vissulega sé það þannig að viðkomandi aðili geti tekið ákvörðun um að nota ekki þessa framkvæmd þá held ég að það hafi verið 99 koma eitthvað prósent sem var farinn að nota Hvalfjarðargöngin þó að enginn hafi ætlað að nota þau. En það er nú samt þannig að það er kostnaður sem leggst á fólk. (Forseti hringir.) Þannig að mín orð til hæstv. ráðherra voru einfaldlega varnaðarorð um að við þyrftum að vanda okkur í því hvernig við leggjum það á almenning.