157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

innviðafélag.

535. mál
[18:06]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir alveg ljómandi gott svar en ég vil aftur minna á að það er á endanum val hvers og eins hvort hann greiði gjaldið eða ekki. Ég tek undir með hv. þingmanni: Þegar ég sjálfur fór að nota Hvalfjarðargöngin, þá fátækur námsmaður, valdi ég raunar aldrei að keyra fyrir Hvalfjörð þrátt fyrir að hafa miklar efasemdir um gjaldtökuna þegar hún var tekin upp einfaldlega vegna þess að ég mat tíma minn og bensínsparnað meira heldur en gjaldið sagði til um. Þrátt fyrir að það sé aðeins óvenjulegt þá langar mig til að svara ákveðnum punktum sem komu fram í ræðu hv. þingmanns varðandi mikilvægi þess að þetta félag flokkist í C-hluta. Mig langaði bara þar til að svara einni spurningu sem varðaði útreikninga á eiginfjárframlagi í standandi mannvirkjum sem þegar er gjaldtaka á og gætu farið inn í félagið, Hornafjarðarfljót, Ölfusárbrú og Vaðlaheiðargöng hafa verið nefnd í því samhengi, þá eru þau raunverulega metin á grundvelli tekjustreymis, þ.e. þær tekjur sem mannvirkin skapa eru í rauninni grunnurinn að (Forseti hringir.) matinu á umfangi framlagsins. Það þýðir jafnframt, ef þessari aðferð er beitt, að mannvirki sem engin gjaldtaka er í hafa engin áhrif (Forseti hringir.) á stöðu félagsins jafnvel þó að í þeim felist töluverð verðmæti. Verðmætin eru ekki önnur en við getum sagt endurmetinn kostnaður fremur en að þau (Forseti hringir.) styrki rekstur félagsins. — Ég biðst afsökunar, forseti.