157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

innviðafélag.

535. mál
[18:08]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra kærlega fyrir síðara andsvarið sem fól í sér svar frekar en spurningu. Ég þakka honum engu að síður vel fyrir það svar vegna þess að það skýrði þetta aðeins betur. Eins og ég sagði áðan hlakka ég bara til að eiga betri orðaskipti og fá betri skýringar á þessu öllu saman þegar þetta kemur inn í hv. fjárlaganefnd.

Það er alveg rétt sem hæstv. ráðherra kom líka aðeins inn á í upphafi síns síðara andsvars varðandi val um leiðina. Jú, það er náttúrlega gríðarlega mikilvægt í þessu að almenningur eigi val um aðra leið. Ég bara segi enn og aftur, og ítreka enn og aftur, varðandi þessa verðmismunun og gjaldtökuna að hún sé þá þannig að menn vandi sig í því þannig (Forseti hringir.) að það séu meiri líkur en minni á að menn velji leiðina líka því rekstrarforsendur félagsins byggjast á því en ég treysti því að það verði farið vel yfir það og greiðslugetan metin og viljinn.