innviðafélag.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni kærlega fyrir spurningarnar. Ef ég byrja bara þar sem hann endaði varðandi tímalínuna, þá er svo sem erfitt að setja á sig einhvers konar spágleraugu hvað það varðar. En það er alveg ljóst að tíminn er kannski ekki alveg að vinna með okkur hér á Alþingi þessa dagana, sérstaklega þegar við erum að fara í páskafrí og svo er frí í tengslum við sveitarstjórnarkosningar, þannig að ég held að það geti orðið erfitt, alls ekkert ómögulegt. En við eigum líka fjármálaáætlunina eftir sem er ókomin og hefur ekki verið mælt fyrir hér og mun taka mikið pláss og mikinn tíma og forgang í nefndinni þar sem hún er náttúrlega dagsetningarmál. Það verður að klára fjármálaáætlun svo hægt sé að koma fram með fjárlög fyrir næsta ár. En við vonum það besta.
Aðeins af því að hv. þingmaður var hér að ræða um þessi stóru verkefni sem eru utan við þingið, ef ég má nota það, ohf.-ið, og bara skoða þetta sem hv. þingmaður var að nefna hér áðan, þá erum við að tala um í þessu innviðafélagi verkefni upp á 190 milljarða og Betri samgöngur sem eru 330 milljarðar. Þetta eru engar smáræðisupphæðir og við erum í raun og veru, með því að setja þetta svona út frá okkur, með miklu minni stjórn og stýringu, kannski bara sáralitla, á þessum verkefnum sem við höfum verið að gagnrýna, að því leyti að þetta er vont upp á hagstjórnarverkfærin sem fjárlaganefnd hefur.