157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

innviðafélag.

535. mál
[18:14]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Eins og hefur komið fram í máli hæstv. fjármálaráðherra þá er náttúrlega verið að færa hér úr hinu hefðbundna fjármálaumhverfi, úr A1, og í staðinn fyrir að fara hugsanlega í A3, sem var aðeins umræða um áðan, þá er hugmyndin að þetta sé C-fyrirtæki, eins og við þekkjum með Isavia, Landsnet og fleiri ohf. Við erum að reyna að átta okkur á þessu samhengi hluta inni í fjárlaganefnd. Það er búin að vera mikil ohf.-væðing í landinu síðastliðin 20 ár og aðhald þingsins, fjárlaganefndar, þingsins alls, eftirlitshlutverkið er erfiðara þegar þetta form er uppi. Það hefur oft verið talað um almennt í umræðunni kannski svona ríki í ríkinu, þannig að þetta hefur verið erfitt og hérna er enn eitt verkefnið sem verður kannski svolítið erfitt að fylgjast með.

Nú er verið að tala um að setja nokkur nokkrar framkvæmdir saman í eitt fyrirtæki, eitt ohf. Spurning mín til þingmannsins er: Væri kannski æskilegra að það væri raunverulega deildaskipt eða sérkennitala á bak við hvert ohf. með hverri framkvæmd, a.m.k. í framkvæmdahlutanum, framkvæmdafjármögnun, eins og er oft kallað? Hefur hv. þingmaður velt því fyrir sér?