157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

innviðafélag.

535. mál
[18:16]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvarið. Ég get upplýst hv. þingmann um að sá sem hér stendur hefur velt ýmsu fyrir sér hvað þetta varðar en ekki þessu. Ég hef ekki velt því fyrir mér hvort það geti verið kennitala á bak við hvert og eitt verkefni. Ég held að það sé bara eitthvað sem fjárlaganefnd þarf að skoða og meta kosti og galla þess að gera það með þeim hætti. Ég skil alveg sjónarmiðin sem liggja hér á bak við. Ég held að kannski sé einfaldara að vera með þetta í einu félagi frekar en mörgum. En ég held að við eigum bara og þurfum að skoða þetta allt saman. Ég velti því fyrir mér eftir að hafa lesið þetta frumvarp, af því að hv. þingmaður var að tala um A1 og yfir í C, að það er alveg ljóst að það er verið að tala hér á nokkrum stöðum í þessari greinargerð um (Forseti hringir.) ríkisábyrgðir á félaginu. Það er líka verið að tala um það í frumvarpinu hvort hægt sé að setja þetta í C eða hvort þetta detti í A3. En það er alveg greinilegt að menn vilja koma þessu í C til þess að koma þessu í burtu frá A-hlutanum. Ég skil alveg hugmyndafræðina þar á bak við. (Forseti hringir.) Þá er náttúrlega ljóst að ríkisábyrgðin getur illa átt við og þá þarf að finna einhverjar aðrar leiðir í því. Og ef ríkisábyrgðin dettur út þá ertu væntanlega að fá óhagstæðari fjármögnun.