innviðafélag.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisgott andsvar. Ég verð nú bara að segja og skal viðurkenna það að ég var ekki búinn að átta mig á þeim möguleika og var ekki búinn að lesa frumvarpið með þeim gleraugum að þetta gæti gerst. Maður hefur nú séð ýmislegt, virðulegi forseti, og maður skal ekki útiloka neitt en alla vega eftir lestur á greinargerð frumvarpsins er hvergi minnst á borgarlínuverkefni þar þannig að við skulum bara vona að þetta haldist aðskilið. Eins og ég sagði í upphafi ræðu minnar er ég ekki andsnúinn þessu verkefni. Við erum bara komin á þann stað sem samfélag og varðandi vegakerfið þá verðum við einhvern veginn að finna aðrar leiðir en í gegnum hefðbundna fjármögnun ríkisins í fjárlögum og samgönguáætlun. Það er búið að tala lengi fyrir þessu frumvarpi. Það skiptir hins vegar máli hvernig frumvarpið er útfært og það er bara eitthvað sem við í fjárlaganefnd eigum eftir að fara yfir og skoða og ég hlakka til þeirrar vinnu. Það er t.d. eitt af því sem hægt er að spyrja um þegar ráðuneytið kemur fyrir nefndina til að kynna frumvarpið, hvort það séu einhverjar áætlanir eða væntingar til þess að borgarlínuverkefnið renni hérna undir og þetta verði einhvers konar samkrull á milli. Ég held að þetta sé alveg fyrirtaks spurning til að spyrja í fjárlaganefnd.