innviðafélag.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni enn og aftur fyrir gott andsvar. Ég deili þessum áhyggjum með hv. þingmanni og þess vegna var ég hér í andsvörum við hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra að tala ítrekað um að menn þyrftu að vanda sig í þeirri gjaldheimtu sem mun hljótast af þessu frumvarpi. Það skiptir máli hvernig þetta er gert vegna þess að það er alveg ljóst, og þetta er það sem við höfum bent á og þetta mun örugglega koma í umsögnum frá sveitarfélögum og landshlutasamtökum, að það er nú bara þannig að þjónustan er í miklum mæli að færast til Reykjavíkur. Við íbúar landsbyggðarinnar þurfum að sækja í hana og ef við þurfum að fara að borga í gegnum Hvalfjarðargöng, borga svo á Kjalarnesi og svo aftur í Sundabrautina og svo inn í Reykjavík, þá þarf að finna út úr þeirri útfærslu. Það þarf að finna út úr þeirri útfærslu því það skiptir máli. En 41 milljarður, ef þetta er allt saman uppsafnað á ári, er mikil upphæð en ég geri mér grein fyrir því að það er bæði sem skattar og þjónustugjöld. Upphæðin er engu að síður há og við verðum að finna og stíga mjög varlega til jarðar, sérstaklega gagnvart landsbyggðinni, ekki bara út af kostnaðinum heldur líka til þess að ná sátt um framkvæmdina á verkefninu.