innviðafélag.
Herra forseti. Þetta er spennandi mál sem við ræðum hér um, stofnun innviðafélags. Þetta er angi af umræðu sem hefur verið í gangi, að ég hygg, a.m.k. frá 2017 með einhverjum hætti. Málið í sjálfu sér vekur upp margar spurningar, margar breytur eru í því og svara þarf mjög mörgu um hvernig hugmyndin sé að allt saman virki og gangi vel upp. Það kemur fram í 6. kafla greinargerðar, um mat á áhrifum, að markmið með stofnun sérstaks innviðafélags sé að skapa skilyrði til að fjármagna uppbyggingu þjóðhagslega mikilvægra samgönguinnviða á fjárhagslega sjálfbæran hátt, að mestu leyti með innheimtu veggjalda á nýframkvæmdum og tilteknum þegar byggðum innviðum. Ef maður fer í fyrstu fréttir af þessu máli sem komu upp úr samráðsgáttinni þá benti Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, á að lífeyrissjóðirnir hefðu áhyggjur af því að svo margar framkvæmdir yrðu í einu félagi í staðinn fyrir að hafa þær betur aðgreindar og að auðveldara væri að setja fjármagn í betur skilgreind stök verkefni í staðinn fyrir að safna mörgum verkefnum undir einn hatt.
Nú veit ég ekki hvernig væri hægt að framkvæma þetta. Alveg fyrstu hugmyndir eru hvort hægt væri, ef þetta er ohf., að stofna ehf. eða dótturfélög undir ohf.-inu, þó að ég hafi svolítið mótmælt því þegar innanlandsflugið varð ehf. undir Isavia ohf., en einhvern veginn að reyna að aðgreina verkefnin og fjármagnið. Þetta er svolítið erfitt fyrir fjárfestana eða fjármögnunaraðilana og ég hugsa að það myndi ekki duga þeim að vera með allar framkvæmdirnar undir ehf. þótt þær væru undir einu ohf. Ég held að þetta sé mjög mikilvægt vegna þess að það hefur að einhverju leyti verið svolítið erfitt að fá fjármögnunaraðilana að og kannski íslensku lífeyrissjóðina. Við þekkjum það með Hornafjarðarfljótið sem við vorum að eiga við á síðasta kjörtímabili og var svolítið erfið framkvæmd að mörgu leyti. Við munum að sú framkvæmd fór verulega fram úr áætlun. Í byrjun átti hún að vera fjármögnuð um 50%, ef ég man það rétt, með umferðargjöldum og þjónustutekjum en ekki náðust samningar við íslensku lífeyrissjóðina og þá innviðasjóði sem eru til staðar innan íslenska lífeyrissjóðakerfisins. Það var svolítið leitt að ekki náðist að lenda því en ég vona að þessi umgjörð, a.m.k. þegar að því kemur og ef verkefnið, þetta frumvarp, fer alla leið í gegnum þingið og verður samþykkt, skapi eftirsókn hjá fjármögnunaraðilum að bjóða í verkefnið. Það er búið að ræða þetta svolítið lengi, ýmsar hugmyndir, og erfiðasti þátturinn er eftir, þ.e. að skapa umgjörð til þess að aðilar verði tilbúnir að setja fjármagn í framkvæmdirnar. Sá sem hér stendur hefur sjálfur gagnrýnt þá umræðu að samgönguáætlun og allt eigi að vera svo fjármagnað. Ég bendi á að þetta mál hefur ekki verið klárað. Það mun örugglega taka töluverðum breytingum í vinnu fjárlaganefndar svo að hægt verði að ná utan um það. Ég vona að umræðan verði góð og mikil, að margar umsagnir verði við málið og að það nái að þroskast með þeim hætti að fjármögnun verði tryggð þegar þar að kemur.
Við erum að fást við mjög margt og erum í fjárlaganefnd að fá kynningar frá ohf.-fyrirtækjunum. Þá bendi ég á tímalínuna í svona málum. Nú erum við með Sundabrautina og mig minnir að talað sé um að framkvæmdir við hana hefjist 2027. Sundabrautin er inni í þessum pakka, sem eitt dæmi, og umræðan hefur verið að hafa Sundabrautina, Fljótagöng og Ölfusárbrúna í einu félagi sem yrði jafnvel opið fyrir því að taka við fleiri framkvæmdum. Ég held að það verði mjög erfitt út frá fjármögnuninni. Ég held að það verði að reyna að hafa þetta í minni einingum þannig að við fáum fjárfestingaraðila. Sá sem hér stendur telur ekki að allir hlutir séu fullfjármagnaðir, eins og í tengslum við samgönguáætlun, en hér er málið sem á að leysa töluvert af þeirri fjármögnun. Það þarf að vera skynsamleg og rétt umfjöllun í gangi í samfélaginu um það.
Sundabraut er áhugavert mál og spennandi og hefur verið til umræðu í rúm 50 að ná einhverri lendingu þar, svona sirka síðan maður var í leikskóla. Þetta er langur tími. Þessi sjálfstæða tekjuöflun félagsins gengur út á að taka lán á markaði og hafa tekjustrauma á móti af þessum framkvæmdum. Bent hefur verið á, og við höfum fengið í tengslum við samgönguáætlunina tímalínuna þar sem fengist er við samgöngusáttmálann á höfuðborgarsvæðinu, að raunverulega þurfi það mál að klárast hvað varðar fjármögnunina í síðasta lagi eftir eitt og hálft ár í gegnum fjárlögin sem verða væntanlega afgreidd í desember 2027 fyrir árið 2028. Fram kemur hjá innviðaráðuneytinu að gefinn er 18 mánaða tími eftir að búið er að samþykkja fjárlögin til að setja hluti í eðlilegt samhengi. Ef rukka á tafa- eða flýtigjöldin 2030 í gegnum Betri samgöngur þá þarf að ganga frá því í fjárlögum eftir eitt og hálft ár. Þar fara tölurnar síhækkandi. Talað er um að flýtigjöldin eigi að taka um 46% af framkvæmdinni þannig að talan hækkar stöðugt. Í þessari viku var reyndar miðað við 311 milljarða kr. eða 13 milljarða á ári 2030–2040 sem eiga að fjármagna verkefnið en nú þegar er verkefnið orðið 328 milljarðar, sem er síðasta talan sem var gefin í fjárlaganefnd. Það þýðir að flýtitekjurnar á ári þurfa að vera 13 milljarðar og 750 milljónir. Talan hækkar stöðugt og það er svolítið erfitt fyrir okkur í fjárlaganefnd að vera með þetta svona í bútum, við þurfum einhvern veginn að koma þessu í stærri mynd. Í þessu nýjasta félagi sem verið er að stofna fyrir almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu, einnig ohf., sem á að bera ábyrgð á rekstri almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu hefur ríkið tekið að sér að fjármagna 35% af þeim hluta sem ekki fást tekjur fyrir. Ef tekjuhlutfall er 30% upp í rekstrarkostnaðinn og 70% eru eftir yrði ríkið að bera 22–24% af þeim kostnaði. Kostnaðurinn kemur því víða fram og við þurfum einhvern veginn að ná heildstæðri umræðu um þetta stóra verkefni og allar þær breytur sem fylgja öllum þessum ohf.-félögum sem verið er að stofna. Við eigum töluvert langt í land með að klára alla þessa hluti og fjármagna þá. Mörg mál þurfa að ganga upp á næstu mánuðum og ég reikna með að hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra sé kominn á fullt í þá vinnu, eins og með Betri samgöngur og hvernig menn sjá fyrir sér að klára það í ráðuneytinu í fjárlögum á næsta ári fyrir jól 2027, fjárlögin fyrir 2028, til að ná þessu inn í fjármögnunina 2030 hvað varðar höfuðborgarsáttmálann.
Einnig er í umræðunni svolítil óvissa um hvaða verkefni eigi að vera þarna inni. Maður heyrir að sumir tala um Sundabraut, Hvalfjarðargöng og Ölfusárbrú, stundum eru Fljótagöng inni í þessu og umræðan er svolítið óljós. Það er kannski erfitt að vera með allt í einu félagi ef það er ekki grunnur fyrir því að tekjur dugi fyrir rekstri og fjárfestingum viðkomandi verkefna. Ef koma þarf til ríkisframlags til einstakra verkefna í einhverju fyrirtæki þar sem inni væru margar framkvæmdir þá held ég að það yrði svolítið erfiðara upp á fjármögnun að gera í staðinn fyrir að hafa bara hrein og bein verkefni sem tekjurnar myndu duga fyrir, tekjustraumarnir af verkefnunum, í heildarpakkanum.
Þetta er það sem ég held á þessum tímapunkti og það er svolítið skammur tími til stefnu ef þetta stóra mál á að klárast fyrir þinglok í júní til að skoða hvernig við sjáum þetta fyrir okkur. Þetta eru stórar hugmyndir og stórar tölur. Það kom fram áðan hjá hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni að af þeim verkefnum sem hann var búinn að leggja saman voru 190 milljarðar tengdir stofnun þessa innviðafélags. Nú eru framkvæmdirnar komnar í 330 milljarða í Betri samgöngum og því er þetta heildarpakki upp á 520 milljarða, sem er dágott. Því eru þetta stórar og miklar tölur sem verið er að vinna með. Maður hefur miklar væntingar til þess að íslensku lífeyrissjóðirnir komi með okkur í þessa vegferð og fjárfesti í þessum framkvæmdum en að sama skapi þarf að vera sú umgjörð á bak við verkefnin að þeir sjái sér það fært þannig að þetta endi ekki í sama dæmi og Hornafjarðarfljótið á síðasta kjörtímabili þar sem urðu töluverðir erfiðleikar með framkvæmdina. Þó að sá sem heldur ræðu eigi ekki að spyrja beint hæstv. fjármálaráðherra þá væri áhugavert að vita hvort einhver slík vinna sé hafin og hvort menn hafi eitthvað nálgast lífeyrissjóðina. Það er áhugavert fyrir okkur að vita hvort einhver nálgun hafi verið um þessa hluti sem eru geypilega mikilvægir.
Sá sem hér stendur hefur ekki verið á móti þjónustugjöldum af umferð og fór nú í vegferð sem snýr að varaflugvallargjaldinu sem treystir mjög uppbyggingu alþjóðaflugvalla landsins. Nú sannaði sig um daginn sá þáttur sem snýr að varaflugvöllunum og þeirri uppbyggingu sem nú þegar hefur verið farið í, að þeir greiða sem nota. Það hefur verið hugmyndafræðin og er hún sú sem við ræðum hér. Svo getur nálgunin verið mjög mismunandi á milli aðila sem snúa að þessum framkvæmdum um hver besta leiðin sé. Það er náttúrlega gríðarlega áhugavert verkefni. Fyrsta tilfinning af því að lesa málið, sem var ekki fyrir mörgum mínútum síðan, er að töluverð vinna sé eftir í skjalinu til að ná ásættanlegri lausn. Mig grunar að það séu töluvert stór verkefni inni í þessu, hvernig eigi að nálgast þetta. Það er náttúrlega verið að reyna svolítið í fyrsta skipti að fá fram lausnina á þessu en til lengri tíma litið, til næstu áratuga, held ég að það sé gríðarlega mikilvægt að finna hana. Hv. þm. Jón Gunnarsson kemur upp í ræðu á eftir. Hann hefur verið með sínar hugmyndir alveg frá 2017 um tekjustrauma af umferðinni og við förum í þá umræðu á eftir. Þetta eru algjör grundvallaratriði. Loks legg ég mikla áherslu á það, herra forseti, að í öllum þessum framkvæmdum, eins og varðandi varaflugvallargjaldið og annað sem snýr að flugöryggi, eigum við að hafa allt sem snýr að umferðaröryggi ofarlega á listanum. Það held ég að sé gríðarlega arðsamt fyrir íslenska þjóð og mikilvægt.