innviðafélag.
Forseti. Ég vil þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir ljómandi góða og málefnalega ræðu. Þótt það sé kannski ekki hlutverk andsvara að sá sem spyr svari þá held ég að við séum nægilega vön því hér að geta gert undantekningar. Ég get staðfest við hv. þingmann að þessi umræða um lífeyrissjóðina hefur einmitt farið fram. Ég geri mér grein fyrir því að með frumvarpinu fylgir umsögn Landssamtaka lífeyrissjóða þar sem einmitt er rætt um þennan möguleika á verkefnafjármögnun. En ástæðan fyrir því að þetta kemur fram með þessum hætti hér, þar sem er ekki sérstaklega gert ráð fyrir uppskiptingu verkefna, er raunar nákvæmlega það sem hv. þingmaður nefndi sjálfur og mig langaði aðeins til að fylgja eftir, sem er áhættan við einstök verkefni. Hv. þingmaður nefndi framúrkeyrslu á framkvæmdum við Hornafjarðarfljót og það er raunverulega þannig að eins og við höfum sett kerfið upp þá eru íslensku lífeyrissjóðirnir áhættufælnir. Það er eðlilegt og gott. En það þýðir líka að þeir eiga ekki gott með að taka þátt í verkefnum þar sem óvissa um útkomuna er veruleg. Ástæðan fyrir því að hér er gert ráð fyrir því að um eitt félag sé að ræða er raunverulega sú að koma til móts við þau sjónarmið lífeyrissjóðanna að draga úr áhættu, vegna þess að eðli málsins samkvæmt er áhættan af þremur verkefnum minni heldur en af einu verkefni, af því að einhvern veginn dreifa verkefnin áhættunni á milli sín. Mig langar til að spyrja hv. þingmann hvort hann skilji ekki þetta sjónarmið.