innviðafélag.
Herra forseti. Jú, ég get alveg skilið þetta sjónarmið að mörgu leyti sem snýr að fjármögnuninni, að taka nokkur verkefni saman. Þá veltir maður fyrir sér verkefnum, t.d. göngum víða um landsbyggðina og öðru. Í þessu samhengi hefur verið rætt um Fljótagöng, sem dæmi, eða bara önnur göng, Fjarðarheiðargöng eða Súðavíkurgöng eða hvað sem er. Ég reikna með að þeir tekjustraumar standi ekki beint undir þeim verkefnum að fullu, þannig að væri þá lausnin á móti að það kæmi þá mögulega framlag frá ríkinu upp að einhverju marki: 50, 60, 70%, eða hvað það væri. Menn fyndu einhvern grunn í því. Færeyingarnir gera þetta náttúrlega með þeim hætti að þeir fara af stað í framkvæmd en þeir tryggja, eins og ég skil þetta, fjármögnunaraðilanum ákveðna traffík og ef sú traffík næst ekki með umferð bíla um einhver göng eða annað þá kemur færeyski sjóðurinn, ríkissjóðurinn, og borgar þá a.m.k. lágmarkstraffík. Nú veit ég ekki, ég tók ekki eftir neinum svoleiðis hugmyndum í þessu plaggi en það getur vel verið að fjármálaráðuneytið og mögulega innviðaráðuneytið eða, ef önnur ráðuneyti koma að því, hafi eitthvað skoðað þann möguleika. Það eru ótrúlega margar breytur þegar maður hefur farið ofan í svona mál á síðustu klukkustundum. Það eru bara svo margar breytur þar, það eru svo margar leiðir og við þurfum bara að finna okkar bestu leið og hámarka og gera þetta sem best og fjármagna þetta með sem bestum og öruggustum hætti, reyna að lágmarka vaxtakostnað og annað. Hugmyndafræðin hér er náttúrlega, og hefur verið stefna íslenskra stjórnvalda um langa tíð, að reyna að lágmarka ríkisábyrgðir eins og við sjáum með Landsvirkjun og ÍL-málið varðandi ríkisábyrgðir og allt þetta. Ég get alveg séð ákveðna punkta en það vakna líka aðrar spurningar.