157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

innviðafélag.

535. mál
[18:45]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Við hv. þingmaður höfum aðeins snúið hlutverkum okkar við en ég held að við séum báðir fullkomlega sáttir við það. Ég er þá hér kominn til að svara fremur en að koma með spurningu. En það eru, eins og hv. þingmaður bendir á, nokkrar leiðir mögulegar. Ein er að það sé tryggð ákveðin lágmarksumferð eða skuggaumferð þar sem keyptur er ákveðinn pakki. Önnur leið, eins og hv. þingmaður bendir á, er að tryggja ákveðna umferð og náist hún ekki þá sé mismunurinn greiddur. En ég tek undir það sjónarmið hv. þingmanns að stóru áskoranirnar felist í verkefnum sem eru á jaðri þess að vera þjóðhagslega hagkvæm vegna þess að þar lendum við augljóslega í vandræðum með ávöxtunarkröfu sem hlýtur að verða. Ég tek algjörlega undir það að ýmis álitaefni þarf að vinna með. Ég held hins vegar að það sé gríðarlega mikilvægt að við setjum þessa vegferð af stað. Eins og hv. þingmaður hefur nefnt hefur verið umræða um að þetta fyrirkomulag myndi henta í ákveðnum tilfellum um langt skeið og eins og ítrekað hefur komið fram í umræðunni hér er Spölur auðvitað eitt af þessum dæmum um vel heppnað slíkt verkefni. Það hefði hugsanlega verið skynsamlegt að halda því verkefni áfram frekar en að missa út áratugi af því til þess að gera litlar framkvæmdir.

Ég hef kannski ekki beina spurningu í framhaldinu heldur hef ég meira varið tíma mínum í svar.