157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

innviðafélag.

535. mál
[18:47]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Það hefði kannski verið skynsamlegt, þegar við lítum til baka, að tryggja einhvers konar áframhaldandi fjármögnunarleið varðandi frekari framkvæmdir. En þessu var lofað og það var staðið við það eins og með Spalarmódelið og Hvalfjarðargöngin. Það kemur fram í ágætri umsögn í samráðsgáttinni frá Akraneskaupstað, sem Haraldur Benediktsson bæjarstjóri skrifar undir, að í þessu sé horft til Hvalfjarðarganga. Þar kemur fram, með leyfi forseta, svo ég lesi bara upp úr umsögninni í samráðsgátt: „Með öðrum orðum boða þessi frumvarpsdrög að með samþykkt þessa frumvarps verði á ný verði hafin gjaldtaka í Hvalfjarðargöngum.“ Niðurlagið er: Er það hugmyndin? Það er kannski hin stóra pólitíska spurning núna sem fólk og sveitarstjórnarmenn á Akranesi og í Borgarfirði eru að hugsa: Verður aftur tekið upp gjald þar? Mér heyrðist á umræðunni áðan að það væri til skoðunar, þó að því hafi nú, skilst mér, verið neitað sums staðar annars staðar. Svo segir í niðurlagi umsagnarinnar frá Akraneskaupstað í samráðsgátt, með leyfi forseta:

„Því er sú forsenda eðlileg að veggjald leggist eingöngu á ný samgöngumannvirki, en falli niður þegar framkvæmdin er að fullu greidd. Sú aðferðafræði getur hvað best fallið að sjónarmiðum almennings um gagnsæi og sanngirni. Akraneskaupstaður vill leggja sérstaka áherslu á að strax í upphafi og undirbúningi lagasetningar verði horft til þess að hafa ákvæði um aðsetur innviðafélagsins á Vesturlandi.“

Ég veit ekki hvað ég á að segja um það. Það er spurning hvort hæstv. ráðherra hafi sérstaka — en þessi umræða hefur snúið mjög að gömlum mannvirkjum sem er búið að fullborga, hvernig eigi að fara með þau í þessu samhengi.