innviðafélag.
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir prýðisspurningar. Eins og ég man þessar framkvæmdir, maður er orðinn svo gamall, þegar verið var að vinna að þeim og þær teknar í notkun fyrir kannski 25, 30 árum eða svo, þá minnir mig að Eyrarsundsbrúin hafi verið tekin í notkun rétt um aldamótin og Stóra-Beltisbrúin kannski fimm, sex, sjö, átta árum áður. Það var svolítið vandamál í byrjun með Eyrarsundsbrúna, umferðin var ekki alveg nægilega mikil og það voru svolítil vandræði. En svo hefur það gengið betur eftir því sem tímar hafa liðið og framkvæmdin sannað sig og er gríðarlega mikilvæg fyrir suðurhluta Svíþjóðar og yfir á Kaupmannahafnarsvæðið.
En það er kannski meira fútt í spurningu hv. þm. Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur sem snýr að ohf.-unum. Sá sem hér stendur hefur náttúrlega talað um þetta mjög lengi varðandi eigendastefnu þessara fyrirtækja, ohf.-anna. Lengi vel voru þetta bara almennar eigendastefnur sem voru eiginlega bara hinar sömu yfir línuna. Þetta hefur satt að segja ekki þróast neitt sérstaklega að maður sjái að það sé skilgreint almennilega með eigendastefnunni hvað viðkomandi aðili eigi að gera og fyrir hvað og hvernig eigi að ráðstafa eignum ríkisins. Þetta er náttúrlega stóra málið og þetta er bara risamál. Við sjáum á síðustu 20 árum þessa ohf.-væðingu. Hún poppar upp. Þetta er einmitt málið og við erum að sjá með almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu að þeim fjölgar og pólitísk samstaða hefur verið lykilatriði eins og ég heyrði hv. þingmann minnast efnislega á. Það er náttúrlega áhugavert orðalag inni í skjalinu. Ég var reyndar ekki búinn að taka eftir þessu.