innviðafélag.
Herra forseti. Ég ætla aðeins að taka boltann þar sem hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson skildi hann eftir þegar hann minntist á eigendastefnuna. Það er nefnilega stóra málið í þessu. Ég átti orðastað við hæstv. ráðherra Eyjólf Ármannsson í gær sem var á því að stjórn nýs félags ætti að ákveða allt. Við þekkjum hvernig þessi ríkisstjórn hefur viljað fjarlægjast ábyrgð, vill ekki taka ábyrgð, vill bara að stjórnir taki ábyrgð og ekki einu sinni að vilji eiganda sé skýr. Þegar ég spurði um hvernig þetta ætti að vera, hvort það ættu að vera dótturfélög o.s.frv. þá var svarið: Ný stjórn verður bara að ákveða það. Þetta er auðvitað með ólíkindum að ætla að stofna þetta félag og vita ekki hvert við erum að fara. Þetta var svarið og þess vegna langar mig að fá að lesa, af því að hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson vitnaði í eigendastefnuna, dæmi um hvernig eigendastefnan er. Í kaflanum Tilefni og nauðsyn lagasetningar stendur, með leyfi forseta:
„Miðað er við að félagið verði sjálfstæður lögaðili sem muni starfa á sjálfbærum fjárhagslegum grundvelli en jafnframt með það samfélagslega markmið að tryggja hraðari framvindu stórra samgöngumannvirkja.“
Hvernig á stjórnin að vinna eftir þessu, hvernig á hún að skilja þetta? Jú, hún á að vera á sjálfbærum fjárhagslegum grunni en jafnframt með samfélagsleg markmið. Þau eru allt önnur. Þetta er bara með ólíkindum og ég biðla til þingheims og sérstaklega hv. fjárlaganefndar að skoða hvernig hefur gengið með aðrar eigendastefnur og laga þetta. Þannig að ég spyr hv. þingmann hér í seinna skiptið: Er þetta ekki eitthvað sem hræðir hv. þingmann og gæti verið eitthvað sem þarf að skoða virkilega vel?