innviðafélag.
Herra forseti. Ég þakka kærlega fyrir þessa spurningu sem hv. þm. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir kemur með hér. Það hljómar í takt við það sem ég var að segja hér áðan varðandi þessar eigendastefnur fyrir ohf.-in. Það þarf náttúrlega að skilgreina verkefnin og til hvers viðkomandi fyrirtæki er. Ég hef aðeins haft áhyggjur og við erum að fá ohf.-in í heimsókn í fjárlaganefnd þessa dagana og vikurnar. Ég tek sem dæmi að á síðasta ári var stjórnum breytt, t.d. hjá Isavia, eftir kosningar. Þá var mikið talað um að þetta ætti að vera svo fagleg stjórnarseta en ég er ekki enn þá búinn að sjá að a.m.k. stór hluti stjórnarmanna hafi sérstaka faglega þekkingu á flugi eða flugtengdri starfsemi en það getur vel verið að maður fái góð svör við því næst. En það er sáralítil umræða um ohf.-in í íslensku samfélagi og nákvæmlega um þetta sem snýr að eigendastefnu fyrirtækjanna.
Eigendastefna þessara fyrirtækja ætti að ná utan um stærstu framkvæmdirnar sem er verið að fara í og hefur verið farið í í Íslandssögunni á undanförnum árum og áratugum og hafa verið á vegum þessara ohf.-a og er algjör grundvöllur. Ég efast um að þetta sé gert í mörgum þjóðlöndum með nákvæmlega þessum hætti þar sem er búið að yfirfæra svolítið mikið yfir á ohf.-in, ef við tökum sem hluti af samfélagi um stærstu framkvæmdir, innviði og annað í félögum sem hafa í raun fjarlægst mjög pólitíkina í landinu. Ég held að maður sé ekkert of harður að segja þetta. Ég gæti orðað þetta líka með allt öðrum hætti en ég hef áhyggjur af þessu, nákvæmlega þessum hlutum.