innviðafélag.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að óska fjármálaráðherra til hamingju með þetta frumvarp um stofnun innviðafélags. Þetta frumvarp lýsir metnaði, þó ekki metnaði til stofnunar innviðafélags heldur metnaði til að ná árangri í samgöngumálum og sérstaklega nýjum samgönguframkvæmdum. Ég held að þessi metnaður sé raunar þeirrar gerðar að hann sé til staðar býsna þvert á flokka hér á Alþingi en líka úti í samfélaginu.
Hvað er ég að tala um? Jú, ég er að tala um að það er breiður stuðningur við það að endurgreiða innviðaskuld með því að auka viðhald. Það er breiður stuðningur við það að viðhalda þjónustu eins og vetrarþjónustu en líka almenningssamgöngum um land allt en það er líka breiður stuðningur og ákall eftir miklum nýframkvæmdum einnig um land allt, bæði hér á Alþingi og úti í samfélaginu. Ég held að ef við myndum leggja saman yfirlýsingar og fyrirheit flokka sem buðu fram í síðustu alþingiskosningum um einmitt nýframkvæmdir séum við þar með alveg risastórt plan; gríðarstórt plan sem fæddist ekki skömmu fyrir þessar þingkosningar heldur hefur þróast og orðið til í umræðu yfir mjög mörg ár.
Það sem við erum að fjalla um hérna, innviðafélagið, á sér í raun margra ára aðdraganda. En það má segja að fjármögnunarþátturinn af þessum risastóru plönum, um að endurgreiða innviðaskuldina, um að standa undir þjónustunni og fjármagna allar viðbótarnýframkvæmdirnar, hafi verið ófjármagnaður í upphafi þessa kjörtímabils. Það voru miklar væntingar, mörg verkefni en ekkert fast í hendi varðandi tekjustofnana eða breytingar á þeim, nema þá í formi áforma eins og um kílómetragjald sem raunar var lagt fyrir á síðasta kjörtímabili og ekki klárað en hefur verið klárað núna nokkurn veginn á þeim nótum sem þá var lagt upp með; hækkun kílómetragjalds, lækkun bensín- og olíuskatta, hækkun kolefnisgjalda eru allt hlutir sem höfðu verið lagðir til áður. Það er raunar önnur undantekning; það var gerður samgöngusáttmáli um höfuðborgarsvæðið þar sem kom inn nýr tekjustofn inn í samgöngumál á landsvísu sem var hlutdeild sveitarfélaga. Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu lögðu 45 milljarða til samgöngusáttmálans sem er algjört nýnæmi.
Þetta innviðafélag gegnir gríðarlega stóru hlutverki í að ná utan um verkefni þar sem hugsunin var áður að þau yrðu til í svokölluðum samvinnufélögum. Þau áttu að vera verkefni, sex voru skilgreind, sem áttu að greiðast með veggjöldum. Um þá skipan var nokkuð góð samstaða á Alþingi. Þvert á það sem glittir í hér í umræðunni þá gerðu sér allir grein fyrir því að þau veggjöld kæmu ofan á grunnfjármögnun samgöngukerfisins. Hvort sem það hefur verið umgjörðinni að kenna eða einhverju öðru þá náðu þessi verkefni ekki alveg markmiðum sínum. Hér hefur Hornafjarðarfljótið verið nefnt sem átti að vera eitt þessara verkefna sem í staðinn sogaði til sín mjög verulegan hluta af nýframkvæmdafé á samgönguáætlun, sporðreisti hana á einu ári, og í raun setti samþykkt samgönguáætlunar í ákveðið uppnám.
Við þurfum að læra af þessu. Ég lít þannig á að innviðafélaginu sé ætlað að ná utan um verkefni sem áður voru hugsuð sem samvinnuverkefni, eins og hér hefur verið nefnt í umræðunni og þingmenn átta sig á, en líka í raun að fjármagna jarðgangaáætlun og Sundabraut, svo dæmi séu tekin, sem hafa verið ófjármögnuð á undanförnum árum. Það er að mörgu að hyggja í þessu og ýmislegt hefur verið nefnt hér. Það markmið er sett að félagið verði í svokölluðum C-hluta gagnvart ríkisbókhaldinu. Þá þarf það að standast svonefnt markaðspróf og þau markaðspróf þarf að virða við val verkefna en líka í því hvernig félaginu er stjórnað, eins og hér hefur verið nefnt. Það er nefnilega ekki alveg val um það hvernig sjálfstæði félaga er sem þurfa að standast markaðspróf; þau þurfa í raun og veru að vera sjálfstæð.
Á þessum tímapunkti liggur ekki fyrir, eins og frumvarpið ber með sér, hvaða verkefni verða valin þarna inn, nokkur eru nefnd, eða hvaða verkefni sem nú þegar eru fyrir hendi, eins og Vaðlaheiðargöng, kunni að vera lögð þarna inn til að skapa tekjur strax í upphafi. Þetta skiptir mjög miklu máli líka gagnvart þessu markaðsprófi og því að þetta uppfylli það að vera fjárhagslega sjálfbært. Það sem bíður okkar í fjárlaganefnd er að glöggva okkur betur á þessum atriðum og líka að skoða samspil þessa innviðafélags við það sem snýr að Alþingi, eins og t.d. samgönguáætlun, forgangsröðun verkefna í samgönguáætlun og samgöngusáttmálann sem hér hefur verið nefndur, hvernig félagið spilar við það. Ég heyri að þetta leitar á huga sumra þingmanna. Hér er meira að segja spurt hvort borgarlínan fari inn í félagið sem hún gerir augljóslega ekki vegna þess að félagið byggir á verkefnum sem njóta tekna þeirra sem nota þau. Borgarlínan er jú sérakreinar sem bara borgarlínan auk viðbragðsaðila notar og myndi þess vegna alls ekki falla að uppleggi félagsins. Mér finnst það býsna augljóst en það getur vel verið að það þurfi að huga betur að aðgreiningu innviðafélagsins, Betri samgangna og þessara verkefna ef jafnvel afburðasnjallir þingmenn hafa ekki áttað sig á því að borgarlínan myndi aldrei falla þarna undir við lestur frumvarpsins.
Samspilið við jarðgangaáætlun skiptir líka máli vegna þess að jarðgöngin eru mjög misarðbær. Sum þeirra, sem jafnvel eru brýnust, munu ekki vera með mjög mikla umferð og þar með ekki miklar tekjur. Þetta þarf að vega inn í markaðspróf félagsins. Ég er sammála þeim sem hér hafa sagt að fjárlaganefnd og þingið þurfi að huga að heildarmyndinni; huga að heildarmynd fjármögnunar á þessum metnaðarfullu áformum í samgöngumálum, um að greiða innviðaskuldina, um að standa undir þjónustunni og um að bæta í nýframkvæmdirnar eins og meira eða minna allir flokkar hafa talað fyrir. Þá þurfum við að taka þá umræðu af ákveðnu raunsæi. Ef við ætlum, eins og borið hefur verið við og er ákveðin freisting í pólitík, að halda áfram að tala um stórkostlega miklu meiri framkvæmdir á allra næstu árum í samgöngumálum án þess að því fylgi nýir tekjustofnar eins og veggjöld þá mun það dæmi ekki ganga upp. Þetta vita auðvitað allir þingmenn innst inni en það er freisting að tala eins og við getum framkvæmt miklu meira en áður, líka bætt úr innviðaskuldinni og aukið þjónustuna án þess að standa undir því með veggjöldum í tilviki innviðafélagsins. Ég held að við verðum að vera svolítið ærleg við sjálf okkur og aðra að það gangi ekki upp.
Hér var spurt um hvert samhengið væri á milli eigandans og skoðunar Alþingis eða ráðuneytanna við félagið. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir ákveðinni tegund af samningsstjórnun; að þegar verið er að tala um verkefni á grunni samgönguáætlunar verði gerður samningur milli innviðaráðherra og fjármálaráðherra um að þau verkefni fari inn í félagið. Frumvarpið gerir ráð fyrir því að það krefjist þessarar skoðunar, sem ég var m.a. að lýsa, en sé síðan staðfest af fjármála- og efnahagsráðherra. Hugsanlega þurfum við að huga að því hvar Alþingi kemur inn í þetta ferli og hvernig við einhvern veginn tryggjum það að Alþingi geti gengið úr skugga um að forgangsröðun verkefna í heildarmyndinni sé í samræmi við samgönguáætlun, samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og jarðgangaáætlun. Þetta skiptir máli til að viðhalda trausti á þessum verkefnum vegna þess að traustið er auðvitað undirstaða þess að fólk sé tilbúið til að borga þjónustugjöld vegna þessara nýju framkvæmda.
Það þarf líka að huga að verkaskiptingu nýja félagsins og Vegagerðarinnar, eins og hér hefur verið nefnt. Það er gerð atrenna að því í frumvarpinu og það útfært býsna vel, m.a. með breytingum á lögum um Vegagerðina. Það er sjálfsagt að fara yfir það í nefndinni hvort það nái settum markmiðum, sem ég held að geti vel verið. En hér hefur verið bent á að það þurfi kannski að huga að verkaskiptingu við Betri samgöngur. Það hefur verið nefnt að Betri samgöngur eigi að hluta til að fjármagna með umferðar- og flýtigjöldum á höfuðborgarsvæðinu og það er hluti af þessari heildarmynd sem hefur verið kallað eftir. Það er ekkert óeðlilegt að skoða þetta samspil og skerpa á þessum greinarmun, annars vegar þess sem gerist á höfuðborgarsvæðinu og hins vegar um landið í þessum efnum, og huga að því við meðferð frumvarpsins hvort þar þurfi í einhverju að bæta úr.
Ég held hins vegar að þingmenn séu á töluvert miklum villigötum ef þeir telja raunverulega að það halli á landsbyggðina þegar verið er að skoða tekjur af umferð annars vegar og hlutfall nýframkvæmda hins vegar. Það hefur árum og áratugum saman verið þannig að tekjur af umferð hafa að miklum meiri hluta fallið til vegna umferðar og bifreiðaeignar á höfuðborgarsvæðinu þó að nýframkvæmdir hafi að miklum meiri hluta fallið til á landsbyggðinni. Um það hefur verið ágætissátt. Íbúar höfuðborgarsvæðisins hafa talið það að ýmsu leyti eðlilegt að það sé verið að greiða og byggja upp grunnnet samgangna um landið. Það er mjög einkennilegt ef þingmenn eru að falla í þá freistni að ætla að reyna að ala á einhverri gjá milli höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðar varðandi tekjur og gjöld í samgöngumálum án þess að átta sig á þessu. Margir íbúar höfuðborgarsvæðisins hafa í raun með réttu, en kannski ekki hávært og kannski ekki mjög miklar undirtektir hér á Alþingi, bent á það hversu mikið af tekjum af umferð fellur til á höfuðborgarsvæðinu en litlu hefur verið varið til brýnna framkvæmda á höfuðborgarsvæðinu.
Núna breytist þetta aðeins, en bara aðeins, með samgöngusáttmálanum sem er rúmir 300 milljarðar en þeir sem hafa kynnt sér samgönguáætlun vita að hún er norðan megin við 1.000 milljarða. Þessar tölur getum við auðvitað skoðað, bæði aftur í tímann og hvernig þær eru núna, en ég vara við því að við ætlum að fara að egna hér landshlutum saman. Ég held að það ákall um að það væru ekki síður umferðar- og flýtigjöld á höfuðborgarsvæðinu en ekki bara veggjöld á landsbyggðinni, sem ýmsir þingmenn af landsbyggðinni hafi sett fram, hafi í raun verið sett fram af heilum hug og sanngirni. Ég held að við verðum bara að setja þetta í heildarsamhengi að bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni viljum við fara í átak í samgöngumálum. Við þurfum að standa saman um það þvert á flokka að hugsa þetta til lengri tíma og finna leiðir sem við erum býsna sátt við að standist yfir kjörtímabilamörk og til langs tíma til að fjármagna þetta. Annars gerast þessir hlutir ekki. Ef við ætlum að vera í pólitískum leikjum hér frá ári til árs varðandi þessa hluti þá verður staðan áfram sú að ekkert gerist árum saman.
Um þetta mætti svo mikið ræða. Ég tek eftir því að í tengslum við þessi mál hefur lítið verið rætt, eins og var mikið rætt á árum áður, að þegar um veggjaldaframkvæmdir væri að ræða þyrfti alltaf að vera til önnur leið, að geta valið sér fram hjá því, eins og að fara allan Hvalfjörðinn o.s.frv. Þetta er minna rætt núna þegar við erum að ræða þetta á kannski breiðari grunni. Ég held að það sé eðlilegt. (Forseti hringir.) En ég vildi bara nefna að í vissum tilvikum getur verið skynsamlegt, og það er leið sem farin hefur verið m.a. á Norðurlöndum, (Forseti hringir.) að það sé þó alltaf góð þjónusta almenningssamgangna sem fólk geti valið sem valkost þegar um veggjöld er að ræða.