157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

innviðafélag.

535. mál
[19:14]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég get byrjað á að taka undir með hv. þm. Degi B. Eggertssyni að höfuðborgin hefur setið eftir, reyndar mörg önnur svæði á landinu líka, en við verðum sennilega seint sammála um í hvaða framkvæmdir eigi að fara ef það á að bæta í framkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu. Fyrsta spurningin er kannski, ég náði því ekki alveg: Sagði hv. þingmaður að það lægi alltaf fyrir að veggjöld kæmu ofan á aðra skattheimtu, þar með talið kílómetragjöldin sem síðasta ríkisstjórn hætti við að fara með inn og þessi nýju vörugjöld sem þessi ríkisstjórn kom með? Eða misheyrðist mér og sagði hv. þingmaður að það væri nýtt að þetta væri að koma ofan á? Ég er líka mjög glöð að heyra hv. þingmann segja að borgarlínan komi ekki inn í nýtt innviðafélag. Hann nefndi hér punkta um hvað þyrfti til. Þá vil ég benda á, sérstaklega þar sem þetta frumvarp fer inn í fjárlaganefnd, að það eru ótal opnanir fyrir þetta félag til að taka að sér alls konar verkefni. Þess vegna tel ég mjög mikilvægt að það verði frá upphafi ákveðið að það verði dótturfélög utan um hvert og eitt verkefni þannig að það verði bara skýrt hvað er arðbært og hvað er ekki arðbært og að það sé augljósara. Þannig munum við fá betri fjárfestingu inn.

Að lokum langar mig að spyrja: Nú liggur fyrir, þegar við erum að ræða þetta frumvarp, að samgönguáætlun er ekki fjármögnuð. Það var einhvers konar gabb því að það á eftir að fjármagna þetta innviðafélag. Núna er hv. þm. Dagur B. Eggertsson í fjárlaganefnd. Hvernig sér hann fyrir sér að samgönguáætlun verði fjármögnuð? Sér hann fyrir sér, af því að nú er þetta mjög óljóst, að það verði komið á hreint fyrir fjárlagaumræðuna núna í haust?