innviðafélag.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Ég vil bara impra á því aftur: Ný fjármögnun er nýbúin að eiga sér stað. Kílómetragjaldið er gjald þessarar ríkisstjórnar. Hin ríkisstjórnin fór ekki af stað með það. Vörugjöldin eru líka ný. Það eru margir milljarðar í nýrri fjármögnun. Ég held að það þurfi að skoða þetta í fjárlaganefnd, að það verði lækkað einhvers staðar á móti.
Í seinni spurningu langar mig að spyrja: Sér hv. þingmaður fyrir sér, af því að nú veit ég að hann þekkir sveitarfélögin ágætlega, að þau gætu mögulega liðkað fyrir umferð, fyrst við verðum að horfa á þetta heildstætt, til að mynda með betri ljósastýringu og öðrum aðgerðum sem myndu vera kostnaðarlitlar?