157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

innviðafélag.

535. mál
[19:20]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir andsvarið. Hvort ég telji að það sé hægt að lækka eitthvað á móti: Já, það er hægt að lækka eitthvað á móti ef maður sleppir einhverjum verkefnum, ef maður minnkar viðhaldið, ef maður minnkar vetrarþjónustuna. Ef maður minnkar einhvern kostnað sem er í kerfinu þá getur maður lækkað á móti. Maður getur hins vegar ekki bætt í viðhaldið, bætt í þjónustuna og bætt í ný verkefni án þess að það komi nýir tekjustraumar. Þessu samhengi held ég að við verðum bara að vera heiðarleg og halda til haga gagnvart öllum. Ef við förum út á meðal fólks og tölum fyrir því að það sé hægt að gera allt fyrir alla án þess að það kosti þá erum við ekki raunsæ og þá þokumst við ekki neitt eins og hefur gerst á undanförnum árum.

Varðandi það að liðka fyrir umferð með ljósastýringu þá er sannarlega hægt að gera það og það eru milljarðar settir í það í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. (Forseti hringir.) Ég get ekki svarað fyrir það hvort það sé góð lausn annars staðar á landinu.