157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

innviðafélag.

535. mál
[19:21]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Degi B. Eggertssyni prýðisræðu. Þegar öllu er á botninn hvolft held ég að við getum verið sammála um býsna margt, þar með talið þessa hugmynd um stofnun innviðafélags sem ég held að væri heillaskref fyrir áframhaldandi uppbyggingu samgöngumannvirkja á Íslandi. Það skiptir auðvitað máli hvernig að því er staðið.

Í fyrstu vil ég nefna að ég tek heils hugar undir það með hv. þingmanni að það er mjög mikilvægt að það sé samstaða um forgangsröðun og verkefnaval þegar viðkemur svona risafjárfestingum sem samgöngumannvirki eru og það sé einmitt, eins og hv. þingmaður nefndi, ákvarðanataka eða festa sem nær yfir kjörtímabil. Ég held að það skipti mjög miklu álit til að mynda við gerð samgönguáætlana og það sé mikilvægt að það sé festa þar. Það er stóra myndin. Við komumst aldrei áfram ef það er skipt um kúrs bara í hvert skipti sem nýir valdhafar komast að kötlunum eða nýir þingmenn einstakra kjördæma vilja koma sínum málum að. Það gengur ekki. Það er fullt af atriðum sem skipta máli. Ég hef takmarkaðan tíma. Mér finnst svona atriði að við stofnun þessa félags gildi sama og um stofnanir íslenska ríkisins, til að mynda um gegnsæi í fjármálum, opna reikninga og annað slíkt. Það sem ég hef áhuga á, og mun kannski víkja aðeins betur að í seinna andsvari mínu, er hvort það sé kannski ekki farið aðeins of bratt af stað varðandi rekstrarforsendur innviðafélagsins. Það er það sem ég er að reyna að átta mig á. Ef við tökum forsendur frumvarpsins gildar þá hlýtur það á endanum að vera þannig að það þurfi að taka upp gjaldtöku (Forseti hringir.) víða um land, jafnvel á meginsamgönguæðum okkar til að standa undir þeirri uppbyggingu sem fjallað hefur verið um hér, (Forseti hringir.) eins og Sundabraut, Fljótagöng og Ölfusárbrú. Það væri áhugavert að heyra í þingmönnum hvað þetta varðar.