157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

innviðafélag.

535. mál
[19:24]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir þetta andsvar og taka undir að ákvarðanataka og forgangsröðun þarf að ná yfir kjörtímabil. Þess vegna þurfa margir að koma að umræðunni og það getur tekið tíma. Ég hef persónulega reynslu af því sjálfur á höfuðborgarsvæðinu en þar sóttum við í raun fordæmi til Norðurlanda og sérstaklega Noregs. Þar hafa borgarsvæðin gert svokallaða pakka sem einmitt ganga út á þetta, að semja með reglulegu millibili milli viðkomandi sveitarfélaga og ríkisins um forgangsröðun framkvæmda og fjármögnun þeirra; hvað kemur úr ríkissjóði, hvað kemur úr sveitarsjóðum og hvað er innheimt með gjaldtöku. Þetta var fordæmið að samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Ég held að það sé fimmti pakkinn í gangi núna á Óslóarsvæðinu. Þetta hefur leitt til algjörrar byltingar á borgarsvæðum í Noregi. Það hefur verið býsna breið samstaða í meginstraumspólitíkinni, sem við getum kallað, um þetta. Það er svona aðeins á jaðrinum þar sem hefur verið andstaða vegna þess að þessu hafa fylgt veggjöld, eða tollar eins og það er kallað á norsku. En framkvæmdirnar eru áþreifanlegar. Ég held að það skipti svo miklu máli og að við séum stödd á svolítið erfiðum stað í umræðunni núna þegar við erum enn þá að ræða gjaldtökuna en fólk er ekki farið að sjá framkvæmdirnar.

Ég tek síðan undir varðandi gegnsæi í fjármálum. Varðandi rekstrarforsendurnar er það eitt af því sem mér finnst spennandi að fara ofan í á vettvangi fjárlaganefndar til að sjá hvort við getum ekki kallað fram svolítið þverpólitíska samstöðu um meginatriðin í þessu. Ég held að það sé til mikils að vinna að ná samstöðu um þessa umgjörð. Ef hún er vel gerð er ég sannfærður um að við getum saman náð mjög miklum árangri í að fjármagna brýnar samgöngubætur eftir þessari leið.