innviðafélag.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og get tekið undir með honum um mikilvægi þess að festa sé í málum er varðar samgöngu- og skipulagsmál. Hv. þingmaður talaði um Noreg í þessu sambandi. Það má líta víða, eins og til fimm fingra-plansins í Kaupmannahöfn um græn svæði, sem hefur haldið bara til dagsins í dag, í yfir 50 ár. En það sem ég er eiginlega að velta fyrir mér hér er þessi kafli 6.2., Rekstrarforsendur innviðafélagsins. Kannski hefði hann hreinlega ekkert átt að vera þarna út af því að frumvarpið sjálft er náttúrlega um strúktúrinn í kringum félagið, ekki nákvæmlega um hvað félagið á að gera. En í greinargerðinni með frumvarpinu er umfjöllun um það sem hlýtur að vera fyrirætlun ríkisstjórnarinnar hvað það varðar sem er að fjármagna framkvæmdir við Sundabraut, Fljótagöng og Ölfusárbrú með þessu félagi og leggja því til 75 milljarða. Ef maður les þennan kafla 6.2. er augljóst að það á að taka upp veggjöld til þess að þetta skili einhverju. (Forseti hringir.) Til þess að það sé hægt að taka lán svo að félagið geti fjármagnað sig þarf að taka upp veggjöld víðar ef þetta er ætlunin. (Forseti hringir.) Ég hef áhuga á því að fá aðeins að heyra betur í þingmanninum hvað þetta varðar. (Forseti hringir.) Það nægir ekki að gera eins og hæstv. fjármálaráðherra gerði hér fyrr í dag, að segja að veggjöldin eigi að — fyrirgefðu, forseti — fara í tvöföldun Hvalfjarðarganga sem er ekki hér undir.
(Forseti (EÁs): Forseti minnir hv. þingmenn á ræðutíma.)