innviðafélag.
Virðulegur forseti. Ég geri ekki athugasemdir við að það sé veitt smá aðeins innsýn í rekstrarforsendur og þá umræðu. Ég held að hún sé býsna mikilvæg í fjárlaganefndinni þannig að Alþingi hafi dálítið skarpa sýn og skilning á þessum hlutum; hvaða skilyrði félagið þurfi að uppfylla við verkefnaval þannig að það séu ekki óraunhæfar væntingar um að félagið geti tekið öll verkefni og hvaða tekjustraumar þurfa að vera. Ég hef ekki sökkt mér í þessar tölur, hvorki þær sem eru nefndar þarna í dæmaskyni né aðrar, en verð vonandi betur í stakk búinn til að taka þátt í þeirri umræðu strax í 2. umræðu um málið þegar við erum búin að sjá inn í þessa útreikninga og átta okkur á, ef við slettum aðeins, með leyfi forseta, dýnamíkinni í þessu öllu saman.