innviðafélag.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Degi B. Eggertssyni fyrir sína ræðu. Ef ég byrja á almenningssamgöngum á landsbyggðinni, er ekki bara eðlilegt, sem einföld spurning, að ríkið komi með sambærilegum hætti inn í þær eins og kynnt er með borgarlínunni? Ný samgönguáætlun, sú sem er verið að vinna að núna og hæstv. innviðaráðherra hefur minnst á, er í eðli sínu byggð á þeirri vinnu sem fór fram 2023–2024 fyrir utan jarðgangahlutann og aðra forgangsröðun sem hæstv. innviðaráðherra hefur lagt fram.
Það er ástæða fyrir því að kílómetragjaldið var ekki klárað á sínum tíma. Það var bara ekki stuðningur við það og margir þingmenn þáverandi meiri hluta vildu halda sig við þau bensín- og olíugjöld sem verið hafa og sá sem hér stendur er einn þeirra. Það væri alveg eðlilegt ef það kerfi hefði verið fasað út sem við höfum nýtt og við værum með kílómetragjaldið á rafmagnsbílana þegar sá hluti stækkar.
Varðandi hlutdeild sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í Betri samgöngum og samgöngusáttmálanum á höfuðborgarsvæðinu og innviðagjöldin þar, þá var hún þegar þetta byrjaði á sínum tíma 2019–2020 milljarður á ári í 15 ár. Þetta áttu að vera 120 milljarðar í heildina og 15 milljarðar sem sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu áttu að koma með. Nú hafa tölurnar hækkað og hækkað hratt en er það ekki mjög tengt því að innviðagjöldin á höfuðborgarsvæðinu voru hugsuð þannig að þau ættu að fara inn í þetta samkomulag (Forseti hringir.) en síðan hafa þau bara hækkað og orðið miklu hærri tala en samgöngusáttmálinn gerði ráð fyrir og sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu?