157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

innviðafélag.

535. mál
[19:31]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Fyrst aðeins um almenningssamgöngur á landsbyggðinni og hvort ríkið eigi að koma eins inn í þær og á höfuðborgarsvæðinu. Ég vil aftur vara fólk við einhverjum samjöfnuði vegna þess að ég er ekki viss um að hann sé landsbyggðinni í hag. Vegagerðin greiðir nær allan rekstrarkostnað af almenningssamgöngum með landsbyggðarstrætó en sveitarfélögin ekki. Það hefur þróast þannig. Sama á við um ferjurnar og sannarlega líka flugið. Þessi framlög, þó að farþegar séu ekki mjög margir að öllu leyti, eru töluvert há per farþega á meðan þessi aukni stuðningur ríkisins við almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu þýðir engu að síður að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu greiða 67% af rekstrarkostnaði við almenningssamgöngur á svæðinu og það til framtíðar. Ég er aftur á móti þeirrar skoðunar að stórefla þurfi almenningssamgöngur á landsbyggðinni, m.a. á Hvítár-Hvítársvæðinu. Ég held að það sé mjög mikilvægt að ræða góðar almenningssamgöngur sem valkost í tengslum við veggjaldaframkvæmdir, sérstaklega að í þeim tilvikum þar sem ekki er önnur leið sem hægt er að velja verði almenningssamgöngur góður valkostur. Þannig hafa mjög mörg lönd hugsað þetta og framkvæmt þetta og þess vegna held ég að það væri áhugavert að skoða það og ræða. Ég held að ég verði að svara síðari spurningunni í seinna andsvari.