innviðafélag.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir þetta andsvar. Ég held að það sé mikill misskilningur um það sem kallað er innviðagjöld eða byggingarréttur sem innheimtur er með samningum þegar verið er að umbreyta landi. Þau eru á bilinu 13.000–17.000 kr. á fermetra og renna til fjárfestingar í nauðsynlegum innviðum með umbreytingu viðkomandi hverfa. Þau eru ekki einhver meiri háttar tekjustofn sem rennur til annarra hluta eða inn í samgöngusáttmálann. Ég held að tölurnar sem þingmaðurinn vísar til séu frá nýlegu útboði á lóðum í Garðabæ þar sem sáust einhver metverð en það er í raun sala í samkeppnisútboði á lóðum en ekki innviðagjöld sem eru innheimt með samningum. Varðandi almenningssamgöngur á Akureyri og í Reykjanesbæ finnst mér eðlilegt framhald af borgarstefnu, sem nær bæði til Eyjafjarðarsvæðisins og Hvítár-Hvítár, (Forseti hringir.) að taka almenningssamgöngur og miklu betri almenningssamgöngur til skoðunar sem sérstakt markmið (Forseti hringir.) fyrir bæði þessi svæði. Svarið þar er já, ástæða er til að skoða það.