innviðafélag.
Frú forseti. Innviðafélag er í mínum huga góð hugmynd en til þess að hún virki þarf að vanda til verka. Ég var í raun og veru spennt að sjá þetta frumvarp og gerði mér kannski of miklar vonir um að hugmyndin væri komin lengra og að þetta yrði ekki bara enn ein stofnunin. Nú þegar ég skoða frumvarpið, og sem betur fer erum við bara í 1. umræðu og það getur tekið breytingum, þó að mörg frumvörp taki því miður of litlum breytingum í meðförum þingsins, kemur í ljós að þetta virðist stefna í að verða bara enn ein stofnunin, ekki dýnamískt félag sem dregur að sér erlenda fjárfestingu, byggir upp hratt, kemur inn með þekkingu, dregur úr fjármagnsþörf ríkisins; jákvæð tilfærsla. Nei, þetta virðist bara vera enn ein stofnunin sem hefur jú þann tilgang að byggja upp þessi mannvirki en skattleggja borgarana enn frekar. Ég biðla því til nefndarmanna í fjárlaganefnd að skoða það að draga úr skattlagningu annars staðar samhliða þessari nýju skattlagningu.
Það sem líka hefur komið í ljós við framlagningu þessa frumvarps er það sem við bentum á, að það var enn ein blekkingin að samgönguáætlun væri fullfjármögnuð. Það er hún ekki sem kemur í ljós í þessu nýja frumvarpi um innviðafélag. Það er á engan hátt fjármagnað. Það eru hugmyndir um einhverja 27 milljarða af 75 sem þurfa að fara inn í þetta félag en annað er óljóst. Ég hef spurt að því, af því að í þessu frumvarpi kemur til að mynda fram að Hvalfjarðargöngin og fleiri mannvirki gætu farið inn í félagið, en það dugar ekki til upp í þessi 75 milljarða, hvað annað ætlar ríkið að koma með fyrst ríkið ætlar að setja inn 75 milljarða? Ætlar ríkið að setja í það að hluta eða í heild félög eins og Isavia og Landsvirkjun, því að augljóslega verða það ekki bara mannvirki sem fara þarna inn, eða verður það beint hlutafé? Af hverju er ríkið, hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra, ekki skýrt með það að þetta félag muni stofna dótturfélög og að það eigi að stofna dótturfélög um hvert og eitt verkefni? Vissulega geta verið fleiri en eitt verkefni í hverju dótturfélagi en ekki þannig að inn í félagið fari óarðbær og arðbær verkefni, öll í graut, til að dreifa áhættunni, eins og hæstv. ráðherra sagði. Það hefur í för með sér að það verður ekki eins spennandi fyrir fjármagn að koma inn. Það er ekki mikið mál að fá erlenda fjárfestingu til að koma að innviðaverkefnum sem eru arðbær til lengri tíma en þegar fyrir liggur að þetta eigi að vera eitthvert samkrull er augljóst að fjárfestingin verður öðruvísi. Einnig myndi ég telja að mjög skynsamlegt væri að líta til fyrirkomulags eins og í Hvalfjarðargöngum sem gekk frábærlega vel utan um eitt verkefni.
Þegar við lesum í gegnum þetta frumvarp sjáum við að það á að setja á stofn enn eitt ohf.-félagið. Þá meina ég það ekki í jákvæðri merkingu, þó að þau hafi yfir að búa jákvæðum eiginleikum líka, en það sem við höfum verið í vandræðum með í ohf.-væðingunni er að tilgangur og markmið hafa ekki náðst. Félögin hafa orðið að einhvers konar stofnunum heilt yfir og bera merki þess að vera ríkisstofnanir. Útgjöld eru allt of há og margt starfsfólk. Svona er þetta gegnumgangandi þó að vissulega sé það mismunandi eftir félögum og því alhæfi ég ekki fyrir þau öll. Þetta er þó eitthvað sem þau hafa verið gagnrýnd fyrir og við þurfum að taka á. Eitt af því sem er mikilvægt til að taka á því er að vilji eigandans sé skýr. Vandamálið er ekki bara það að hann sé ekki skýr heldur er vilji eigandans svo óskýr að það er oft og tíðum erfitt fyrir stjórnir þessara félaga að vinna. Af hverju er vilji eigendanna svona óskýr? Ég held að það sé fyrst og fremst vegna þess að hæstv. ráðherrar þora ekki eða vilja ekki bera ábyrgð. Þessi hæstv. ríkisstjórn hefur tekið það skrefinu lengra en allar aðrar ríkisstjórnir að fjarlægja valdið eins langt frá kjósendum og hægt er, bætir svo í og segir: Þetta er alveg sjálfstætt. Bíddu nú við. Ef svona mál á að takast þarf að vera mikil pólitísk samstaða um hvert við erum að fara og hvernig það verður. Því miður, í þeim orðaskiptum sem ég átti við hæstv. ráðherra Eyjólf Ármannsson í gær, féllust mér eiginlega hendur þegar ég spurði út í það hvernig uppbyggingin væri hugsuð. Til að mynda, yrði innviðafélagið með dótturfélög? Svar hæstv. innviðaráðherra var skýrt; hann hafði ekki hugmynd og ætlaði ekki að hafa skoðun á því. Af hverju? Vegna þess að óskipuð stjórn þessa nýja félags á að ráða því. Við erum að fara að stofna innviðafélag um samgöngubætur á Íslandi sem á að vera virkilega gott framfaraskref og hæstv. ráðherrar ætla að láta einhverja stjórn sem ekki er búið að skipa, við vitum ekki einu sinni hvernig hún verður skipuð — ef við þekkjum hæstv. ráðherra af reynslunni koma þeir sem minnst nálægt því, alla vega opinberlega, og verða eins langt frá því og hægt er. Það gengur ekki upp í þessu verkefni því það þarf að vera mikil pólitísk samstaða og vilji eigandans til að fara í ákveðna átt, ekki að við stofnum þetta og svo komi bara í ljós hvað þessi þriggja til fimm manna stjórn, eins og hún á að vera, ákveði að gera. Ákveður hún að hafa óarðbær og arðbær verkefni saman? Ákveður hún að leggja eitthvað á sig til að ná í erlenda fjárfestingu? Eigum við bara að vona það besta? Ef við ætlum að ná í góða erlenda fjárfestingu í þessi verkefni er mjög líklegt að lagabreytingu þurfi til að liðka fyrir. Þess vegna er virkilega mikilvægt að þetta verði unnið svo vel, að mikil samstaða verði um þetta og að lagabreytingarnar verði tilbúnar. Þá getur þetta orðið svo gott félag. Samhliða þessu myndi ég telja að við þyrftum að taka ákvörðun um hvað við viljum eiga, hvaða fyrirtæki ríkissjóður vill eiga, hvaða fyrirtæki ríkissjóður telur rétt að hann eigi. Einnig samhliða því hvaða fyrirtæki ríkissjóður telur rétt að reka og standa í rekstri á. Það er fullt af fyrirtækjum sem við töldum fyrir 20–30 árum að ríkið þyrfti að reka. Við hlæjum að því í dag, það var svo skrýtið. Við vorum að reka öll þessi fyrirtæki í alls konar verkefnum og iðnaði og okkur myndi aldrei detta í hug að fara til baka.
Nú legg ég ekki mat á það en mér þætti gott ef fyrir lægi vilji ríkisstjórnarinnar samhliða þessu vegna þess að inn í þetta félag þarf að fara fullt af eignum. Hvernig félög munu fara inn? Svo virðist af lestrinum að það verði bara þegar tilbúin samgöngumannvirki en þegar þau eru talin upp í frumvarpinu ná þau ekki upp í upphæðina. Þá er talað um hluti eins og hlutafé, að leyfðar verði lántökur og slíkt, alls staðar möguleikar og annað. Þetta er allt saman óútfært. Svo er vitnað til staða þar sem þetta hefur gengið vel. Það er reyndar frekar fyndið að vitnað er til þess að það hafi gengið svo vel í Evrópu að vera með slík innviðafélög en þegar maður les áfram var innviðafélagið í Danmörku mest skoðað, en ESB-stjórnin varð að hafa Evrópu. Ég get upplýst hæstv. ríkisstjórn um það að flestar heimsálfur hafa yfir að búa ágætisdæmum um vel heppnuð innviðafélög. Vitnað var til Danmerkur og framkvæmda sem hafa gengið vel þar. Fram kemur í greinargerð með frumvarpinu að þar hafi verið mikilvægt að skýr stefna hafi verið um hvernig þetta ætti að vera og hvert ætti að fara og pólitísk samstaða. Svo vann félagið sjálfstætt. Aftur á móti þarf að vera skýr vilji hér vegna þess að ráðuneytin koma að því að ákveða verkefnin. Þar þarf að vera samband. Þessi ríkisstjórn hefur hins vegar ekki viljað hafa skoðun á ríkisfyrirtækjum, sem er mjög slæmt. Ekki er farið vel með fé með því að hafa ekki skoðun og fjarlægja valdið. Það er ekki gott.
Tíminn líður hratt og ég er ekki byrjuð að opna það sem ég ætlaði að fara yfir, hvert og eitt atriði, en fyrst er það ráðgjöfin. Ég veit ekki hvernig það virkar í þingstörfum, hvort hægt sé að óska eftir því að fjárlaganefnd fái mögulega ráðgjöf um það sem vel hefur tekist og hvernig megi bæta þetta frumvarp. Það gengur ekki svona og við værum að klúðra miklu tækifæri ef frumvarpið tekur ekki miklum breytingum.
Nú ætla ég, með leyfi forseta, að lesa aðeins upp úr frumvarpinu varðandi 7. gr. Ég verð að fá að koma inn á veggjöldin í þessari fyrstu ræðu en í 7. gr. stendur skýrt að félaginu sé heimilt að innheimta veggjöld fyrir notkun samgöngumannvirkja. Það er eðlilegt og þetta er hugmyndin um að þeir borgi sem noti. Það er ágætishugmynd upp að ákveðnu marki. Við þurfum alltaf að taka tillit til þess að sums staðar sé það kannski ekki alveg hægt, á stöðum úti á landi o.s.frv. Aftur á móti gengur það ekki upp að vera með tvöfalt kerfi, annars vegar að þeir borgi sem noti og hins vegar gríðarlega skatta á bifreiðaeigendur. Það verður að draga úr skattheimtunni sem nú er ef fara á í svona gríðarlega mikla viðbótarskattheimtu. Félagið á að standa undir sér sjálft og því munu gjöldin verða talsverð. Ég minni á að þetta er til viðbótar við kílómetragjöldin og vörugjöldin. Það hefði verið nær hjá ríkisstjórninni að vinna þetta betur saman en það varð að keyra skattahækkanirnar í gegn um áramótin þrátt fyrir aðvaranir um hvað vörugjöldin myndu hafa mikil áhrif á verðbólguna, að öll umgjörð kílómetragjaldsins yrði ekki tilbúin. Það var varað við aukinni verðbólgu, að þetta myndi ekki skila sér að því leyti sem búist var við og því að kerfin væru ekki tilbúin. Við vorum rétt komin inn í janúar þegar þetta var allt farið að koma í ljós.
Nú þegar við sjáum þetta hér hefði verið ofboðslega gott að anda með nefinu, taka mark á umsögnum og segja: Já, vinnum þetta aðeins saman. Hvernig ætlum við heilt yfir að haga gjaldtöku á bifreiðar? Hún þarf að ganga upp fyrir þá sem hér búa, fyrir ferðamenn og fyrirtækin en nú erum við í þeirri stöðu að verðbólgan hefur kostað heimilin meira en það sem skilar sér í skatt til ríkisins. Kílómetragjaldið virkar ekki og allir eru í veseni og við erum komin með nýtt frumvarp sem er því miður ekki tilbúið og á mikið eftir til að geta virkað. Ég vona, frú forseti, að í meðförum þingsins verði það lagað því að gott innviðafélag er heillaskref fyrir Ísland.