innviðafélag.
Forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jóni Gunnarssyni fyrir ágæta yfirferð. Við hv. þingmaður höfum rætt þær hugmyndir sem hann nefndi í ræðu sinni nokkrum sinnum og margt af því sem fram kemur í máli hans er málefnalegt og eru skynsamleg rök. Það sem ég hnýt um er sú afstaða að þetta skref sé ómögulegt af því að það sé ekki skref alla leið. Ég tel í fyrsta lagi að engri ferð ljúki nema fyrsta skrefið sé einhvern tímann tekið. Mig langar að bera undir hv. þingmann þá spurningu hvort það sé ekki einmitt full ástæða til að styðja málið þrátt fyrir að það fari ekki alla leið í þær hugmyndir sem hann viðraði í ræðu sinni og hefur ítrekað viðrað í þessum stól, í ræðu og riti og á fundum um allt land.
Ég tek undir mikilvægi þess að sátt ríki um fjármögnun innviðafjárfestinga og mikilvægi innviðafjárfestinga á Íslandi. En ég vil minna á að þrátt fyrir að hugmyndir hv. þingmanns hafi ekki orðið að veruleika enn þá hefur fjármögnun með þeirri leið sem verið er að ræða um í þessu frumvarpi verið beitt með góðum árangri, bæði hvað varðar Hvalfjarðargöng og Vaðlaheiðargöng. Það er raunverulega þannig að þegar við bjóðum upp á samgöngubætur þá erum við að bjóða neytendum, almenningi, valkost um að nýta innviði. Sú staðreynd að almenningur velji að nýta sér þann valkost þýðir (Forseti hringir.) í raun að hann er sáttur við þau býtti sem honum eru boðin jafnvel þó að þau gildi ekki alls staðar.