157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

innviðafélag.

535. mál
[20:10]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hvort ekki sé hægt að samþykkja þetta þótt þetta fari ekki alla leið: Vandamálið í því að taka eitthvert skref sem er óútfært, þ.e. að við sjáum ekki myndina lengra heldur en þessa takmörkuðu mynd, er að við náum aldrei sátt um það að mínu mati. Ef menn ætla að fara í þessa gjaldtöku þá verður að fara að falla frá einhverjum af þessum gjaldtökum sem hafa verið innleiddar núna bara á þessu kjörtímabili. Það er bara grundvallaratriði til að ná þjóðarsátt. Við getum ekki bara endalaust dælt sköttum á heimilin í landinu. Það er engin ástæða til að gera það heldur. Að því leyti tel ég að við eigum að hafa sýnina lengri. Munum við sjá alla leið? Nei, kannski ekki endilega, en sýnin og vegferðin þarf að vera mörkuð. Þetta hefur komið fram hjá fleiri ræðumönnum. Ef við ætlum að ná sátt um þetta þá þurfa menn að hafa lengri sýn, sjá hvernig við ætlum að útfæra þetta. Það var reynt hér að fara í svona innheimtu á síðasta kjörtímabili á grundvelli einstakra framkvæmda eins og Hornafjarðarfljóts. Það átti að gera þetta með Öxi og svo er það Ölfusárbrúin núna, sem er reyndar allt of dýr, fáránlega dýr, en látum það liggja á milli hluta. Þessi verkefni gengu ekki vel upp. Það gekk ekki vel að fá tilboð í þessi verk þar sem fjármögnunin var hjá verktakanum og hann átti síðan að innheimta. Þetta þarf að vera ein samfella. Hæstv. ráðherra nefnir Vaðlaheiðargöngin. Já, þau eru dæmi um þetta en auðvitað er allt of dýrt að fara í Vaðlaheiðargöngin miðað við hvernig það var í Hvalfjarðargöngunum, þar er umferðin. Ég held að við verðum að horfast í augu við það að ef við ætlum að byggja upp öflugt samgöngukerfi í landinu (Forseti hringir.) þá verður það að vera sameiginlegt átak okkar allra. Það flæðir fjármagn til höfuðborgarsvæðisins og inn í þjóðarbúið af starfsemi úti á landi í miklu hærra hlutfalli. Hér verður kostnaðurinn til. (Forseti hringir.) Á móti þurfum við að senda meira af þessu fjármagni út á land hlutfallslega til að byggja upp öflugt samgöngukerfi um allt land. (Forseti hringir.) Það er þjóðhagslega hagkvæmt. Það mun skila sér í kassann fyrir okkur öll þegar upp er staðið.