157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

innviðafélag.

535. mál
[20:12]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég tel að vísu eðlisólíka nálgun í bæði Hornafjarðarfljóti og Ölfusárbrú. Sú nálgun sem hér er verið að tala um líkist miklu meira Hvalfjarðargöngum og minna hinum verkefnunum. Það er alveg rétt sem hv. þingmaður segir: Kostnaðaraðhald er ekki nægilegt í innviðaverkefnum á Íslandi. En það er einmitt nákvæmlega með því að setja þau inn í félög, sem byggja á því að ákvarðanir séu teknar á grundvelli heildararðsemi verkefnisins, sem er lykilatriðið. Ég fór yfir þetta þegar ég mælti fyrir málinu hér áðan.

Ég verð að viðurkenna að ég sé enga annmarka á því að félagið geti ekki þróast með einhverjum hætti, breytist hinir pólitísku vindar í þá átt sem hv. þingmaður nefnir. Hann veit jafn vel og ég að það er fjarri því að það sé pólitísk sátt um hans lausn. Mér hefur löngum þótt skorta á vilja til samstöðu og málamiðlana í þessum sal. En í þessu máli alveg sérstaklega, þar sem við deilum í sjálfu sér ekki um grundvallarhugmyndina heldur um umfang útfærslunnar, þá verð ég að viðurkenna að það kemur mér aðeins á óvart.