157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

innviðafélag.

535. mál
[20:14]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það á nú ekki að koma hæstv. ráðherra neitt á óvart þó að það sé ákveðin tortryggni gagnvart því að skrifa svona svolítið opinn tékka til þessarar ríkisstjórnar sem við höfum ítrekað verið að gagnrýna fyrir skattagleði. Ég held að það yrði auðvitað að vera innbyggt í svona módel, eins og ég kom inn á áðan, þetta kostnaðaraðhald. Við höfum farið alveg hræðilega út af sporinu þegar kemur að því, þegar við bjóðum út Fossvogsbrú sem var settur verðmiði og þak á að ætti að kosta ekki meira en 2,2 milljarða, sem er kannski 3 milljarðar í dag eða innan við það, en við erum að fara að byggja brú fyrir kannski, hvað eru það, 9 milljarða, 10 milljarða eða 12 milljarða. Þetta er auðvitað algjört bull og það veit enginn hvar þessi ákvörðun var tekin á leiðinni. Það er alveg sama með Ölfusárbrú. Í staðinn fyrir að byggja tvær minni brýr úti í eyjuna og vegstubb yfir eyjuna, það er hafið í brúm sem verður dýrt, þá er þetta mannvirki byggt. Bara í þessum tveimur verkefnum ætla ég að fullyrða að það hefði verið hægt að gera þetta fyrir 10–12 milljörðum minna. Auðvitað verður að vera innbyggt í svona kerfi, og þess vegna kom ég inn á það í ræðu minni áðan, að við eigum auðvitað að bjóða út öll svona stærri verk með hönnun og útfærslu; láta þá sem hafa verkvitið bjóða í þetta og bjóða einföldustu, ódýrustu og hagkvæmustu útfærsluna. Nei, það má vel vera, virðulegur forseti, eins og hæstv. ráðherra segir, að það sé ekki pólitísk sátt um þá lausn sem ég hef verið að boða í nokkur ár. Ég er alveg viss um að það er enginn stór munur á þessu sem verið er að boða. Markmiðið er það sama. Ég held bara að ef menn setjast niður með þeim sem hafa vit á þessum verkum, (Forseti hringir.) eins og ég gerði á sínum tíma, fór bara yfir það með fólki hvernig væri best að gera þetta, þá væri þetta lausnin. Fordæmin eru til og við eigum að horfa til þeirra.