157. löggjafarþing — 87. fundur, 23. mars 2026.
dagur Norðurlanda.
Forseti vill vekja athygli hv. alþingismanna á því að í dag, 23. mars, er dagur Norðurlandanna. Þann dag árið 1962 var Helsingforssamningurinn undirritaður. Hann tryggir öllum ríkisborgurum Norðurlanda m.a. jafnt aðgengi til náms og vinnu hvar sem er á Norðurlöndunum og er hornsteinn samstarfs ríkjanna. Af þessu tilefni er fánum Norðurlandanna flaggað við framhlið Alþingishússins í dag.