157. löggjafarþing — 87. fundur,  23. mars 2026.

Frestun á skriflegum svörum.

[15:01]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Borist hefur bréf frá atvinnuvegaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 807, um fæðuöryggi, frá Ingibjörgu Davíðsdóttur. Einnig hefur borist bréf frá dómsmálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 821, um endursendingar hælisleitenda, frá Bryndísi Haraldsdóttur.