samráð við ráðuneyti um mál í utanríkismálanefnd.
Frú forseti. Á fundi hv. utanríkismálanefndar í morgun kom fram sú afstaða af hálfu fulltrúa utanríkisráðuneytisins að ekki bæri lengur að hafa samráð við utanríkismálanefnd um mál sem væru þingmál. Með öðrum orðum: Það er nú mat utanríkisráðuneytisins að þær skyldur sem þingsköp leggja á herðar ráðherrum eigi ekki lengur við þegar um þingmál er að ræða. Við þekkjum hvernig þetta kom til. Þetta kom til þegar hæstv. utanríkisráðherra leitaðist við að afsaka það að hafa ekki kynnt áform sín varðandi Evrópusambandið fyrir utanríkismálanefnd áður en þau voru kynnt fyrir hinum ýmsu aðilum í Brussel sem síðar upplýstu erlenda fjölmiðla um áformin. En ég biðla til hæstv. forseta og fer raunar fram á það að hæstv. forseti grípi hér inn í því að með þessu er gerð tilraun til að hliðsetja utanríkismálanefnd, elstu þingnefnd Alþingis, (Forseti hringir.) og komast hjá því að uppfylla þær skýru kröfur sem gerðar eru til stjórnvalda gagnvart þeirri nefnd.