lengd þingfundar.
Virðulegur forseti. Við höfum haft mikinn skilning á því og tekið þátt í því að hér eru lengri þingfundur og hafa verið miklu örar heldur en gengur og gerist og ekki alveg í samræmi við þingskapalög og markmiðin með þeim. Það vita það allir að í dag var sett búnaðarþing og á búnaðarþingi taka stjórnmálaflokkarnir á móti bændum úr sínum röðum, fólki úr sveitum úr sínum röðum, til veislu í sínum höfuðstöðvum á eftir. Mér finnst það vera mjög dapurt og ég man ekki eftir að það hafi áður gerst að á þeim sama degi er boðað til kvöldfundar í þinginu. Það má vel vera að ríkisstjórnarflokkarnir beri ekki meiri virðingu fyrir fólki úr sveitum landsins heldur en raun ber vitni með þessari ákvörðun en við Sjálfstæðismenn eigum erfitt með að taka þátt í þessu af því að við ætlum að hitta bændur úr okkar röðum uppi í Valhöll um kvöldmatarleytið.