lengd þingfundar.
Virðulegi forseti. Ég kem hingað upp til að gera grein fyrir atkvæði mínu. Ég styð það að við fáum þessa heimild til að hafa lengri þingfund. Ég bind líka vonir við það, þar sem það eru ekki mörg mál á dagskrá, að dagskrá verði einfaldlega lokið áður en til kvöldfundar kemur. En það er gott að hafa heimildina, sérstaklega þar sem komið hefur beiðni frá m.a. þingflokksformönnum um að hugsanlega verði liðkað fyrir þingfundi meðan á þessum móttökum stendur. Með þessari heimild höfum við aukið svigrúm til að bregðast við því en ég ítreka það að ég bind vonir við að við séum einfaldlega að ljúka fundi á réttum tíma. Ég sé ekkert athugavert við það að hafa þessa heimild. Það er einfaldlega gott. Við erum orðin öllu vön hér í þinginu, hér getur ýmislegt gengið á og heimildin er góð.